Leita í fréttum mbl.is

Gleðileg jól

Sæl verið þið:Untitled-Scanned-03

Þá er runninn upp minn 46ti aðfangadagur og verður að segjast að harla man ég eftir minni fyrstu jóalgjöf, en einhvers staðar í minningabankanum eru gjafir eins og snjóþota, norskur sleði með sæti og handfangi og svo stóð maður fyrir aftan sætið ofan á járninu og ýtti sér áfram. Þar að auki man ég eftir að hafa fengið Matchbox bílabraut, átthyrnd, enda var hún notuð óspart þau jólin, eða þangað til batteríin kláruðust. Þá beindist athyglin að einhverju öðru. Oftast nær þegar spurt var hvað ég vildi, þá var ég nokkuð ákveðinn, bækur, og þá helst bækurnar eftir Enid Blyton, um hin fimm fræknu. Þetta voru uppáhaldssögurnar mínar, ævintýri og spæjaragátur. Svo er í minningunni jól þar sem gjafirnar hafa verið minni, en samt þýðingarmeiri, og um tíma þegar frændi minn og nafni lifði var ég best klæddi maðurinn eftir gjafaflóðið frá honum. Nú hin síðari ár eru jólin komin með annan merkisblæ, í huga mínum meira tengt mat, slökun og lestur bóka og áhorf mynddiska. Svona breytist þetta.

'Aðuren ég slútta  þessu bloggi, þá langar mig að hefja hér upptalningu á merkilegum staðreyndum varðandi bardagahetjuna miklu, Chuck Norris goðið sjálft, og ég veit ekki hvað ég get hafið manninn meira til skýjanna.

Hér eru fyrstu molarnir, lauslega þýddir úr ensku:

1. Tárin hans Chuck Norris geta læknað krabbamein. Slæmt er þó að hann hefur aldrei grátið. Aldrei

2. Chuck Norris sefur ekki. Hann bíður átekta.

3. Aðalútflutningsvara Chuck Norris er sársauki

4. Chuck Norris hefur talið til eílífðar. Tvisvar

5. Chuck Norris fer ekki á veiðar, þar sem orðið  gefur til kynna möguleika á að mistakast. Chuck fer frekar út og drepur.

6.Það er engin kinn undir skeggi Chuck Norris. Þetta er eingöngu annar hnefi.

Læt þetta duga að sinni.

 

Hilsen og eigið gleðilega hátíð.

Með þökk fyrir lesturinn og allar athugasemdir sem borist hafa.

Gilli


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Egill Egilsson
Egill Egilsson
Gamall ritjálkur sem hefur unun af því að rýna í mannlíf og umhverfi.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband