Leita í fréttum mbl.is

Svínslegt

Jæja sæl verið þið:swine 2 c

'Oðum nálgast jólin. Hér er grá jörð, hiti og almennt mjög gott veður. Það er löngu búið að slá af að hér muni hvít jörð fagna landsmönnum á aðfangadag eða yfirleitt í kringum jólahátíðina. Verður að segjast eins og er fyrir íslending eins og mig þá veit maður ekki hvort maður á að kætast eða leggjast í sorg yfir því að hafa ekki snæhvíta mjöllina með öllu sínu frosti og  kulda. Að vissu leyti söknuður en um leið áhyggjur yfir framhaldinu, þ.e hvað tekur við eftir áramót.

Mínar áhyggjur eru þó smáar í samanburði við áhyggjurnar sem danir hafa yfir nýjustu útspili dansks  listamannahóps sem settni nýverið auglýsingu í Teheran Times í 'Iran þar sem við fyrstu sýn sem hópurinn virðist styðja baráttu Írana fyrir kjarnorkuvinnslu. En þegar betur er að gáð,  þá mynda fyrstu upphafstafirnir úr auglýsingunni þegar þeir eru settir saman orðið SWINE. Og það er ekki til að bæta það að yfir texctanum trónir mynd af forseta 'Irans Mahmoud Ahmedinejad yfir öllu svínaríinu.

Menn héldu eftir þessar víðfrægu Múhameðsteikningar að nú væri mál að linni, en ónei þá sprettur þessi grúppa upp, sem hefur unnið sér það helst til frægðar að hafa farið til  Balkanlandana og gert grín að serbískum lýðræðissinum sem  styðja Ratko Mladic hershöfðingja. Grínið fólst í því að hengja upp plaköt með fyndum skilaboðum. Þennan leik hefur þessi listamannahópur iðkað í helstu málum sem brenna á heimsbyggðinni.

Með þessu útspili telja þeir sem næst standa málefnum 'Irans að þetta muni skapa enn meiri hatur á dönum, og jafnvel beinast gegn þeim sem virða menningarheima annarra ríkja. Einn af þeim sem hefur tjáð sig um þetta útspil, er´íranskur vísindamaður við  Háskólann í Aaarhus, en að hans mati er orðaval listamannahópsins frekar óheppilegt. Annar tekur í sama streng og segir að orðið svín sé gjarnan notað til að svívirða múslima.   Það valdi ekki neinni umræðu aðeins reiði að nota slíkt orð.

Þrátt fyrir þessa auglýsingu vona menn að hún skaði ekki hagsmuni dana eins  og múhameðsmálið, og telja að þar sem lesendahópur Teheran Times sé frekar lítill, aðallega  diplómatar og útlendingar, að skaðinn verði ekki eins mikill og kröftugur og múhameðsteikningarnar ollu á sínum tíma. En þó taka þeir öllu með fyrirvara, enda dönsk framleiðsla og fyrirtæki ekki vinsæl sem stendur í Arabalöndum.

Að mati listamannahópsins finnst þeim þetta hafa skilað jákvæðri umfjöllun og þeir telja að sjálfur Mahmoud hafi húmor fyrir slíkum uppákomum, og telja að þetta muni ekki valda miklum skaða, tilgangurinn hafi fyrst og fremst verið sá að setja af stað háð þar sem almenna umræðan er kæfð af orðfæri ríkjandi valdhöfum vestursins, í þá umræðu skorti háð og léttleiki.

Hilsen

Gilli

Set inn mynd af amfiteater IBM í þríviddarheimi Secondlife.

amfiteater IBM


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Egill Egilsson
Egill Egilsson
Gamall ritjálkur sem hefur unun af því að rýna í mannlíf og umhverfi.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband