Leita í fréttum mbl.is

Eldhústíkur

HilsenMatta 1 copy

Já hún er ögrandi fyrirsögnin, en líkt og allar aðrar fyrisagnir hefur hún ákveðna staðhæfingu að geyma. Þegar ég fyrst kom hérna á kollegiium þá hékk á hurðahúninum plastað skilti sem innihélt A-4 blað þar sem ég er boðinn velkominn, og um leið áminntur um það að þetta væri mín vika, þar sem ég skyldi fara út með ruslið, strjúka af borðum og almennt stunda hreinlæti í sameiginlega eldhúsinu okkar. Einnig skyldi ég hafa vakandi auga með eitthvað skyldi vanta og kaupa og fá síðan borgað úr eldhússjóðnum. Einfaldar og skýrar upplýsingar. Manna á milli er þetta kallað að vera eldhústík í eina viku. Og að sjálfsögðu uppfyllti ég mínar skyldur og lauk vikunni með sóma. Eftir það var þetta í orden, en oft kom fyrir að ákveðinn einstaklingur kom inn í eldhúsið, eldaði og gekk svo ekki frá. Fundist hafa pottar enn með skáninni í og inn á milli verkfæri sem notuð hafa verið og ekki sæmilega þrifin. 'A meðan sú þýska var hérna, hún Elena okkar, þá einhvern veginn tókst að halda eldhúsinu hreinu og eitt skiptið var haldið þrifakvöld á föstudegi og svo dottið í það, en tiltekt laugardaginn eftir var ekki það fyrsta sem öllum datt í hug.

Eftir að stúlkan sú kvaddi okkur og hefur skilið suma með tómarúm í hjarta og ljúfar minningar, þá hefur heldur betur undan fæti og er nú komið svo eldhúsiðer varla mönnum bjóðandi, með pott þar sem innihaldið minnir á tilraun í náttúrufræðasafni, uppsafnað leirtau í einum vaskinum sem staðið hefur á þriðja viku. Og svo inn á milli er drals og allskyns sem menn hafa ekki döngun í sér að ganga frá. Einhvern veginn virðist sú hugsun ríkja að næsti maður muni ganga frá en sú óskhyggja nær stutt. Þar að auki ganga á milli ásakanir að hinn og þessi eigi þetta og hitt leirtauið og að viðkomandi ætli sér ekki að þrífa skitinn eftir viðkomandi. Nú er komið svo að boðað hefur verið til fundar og þar er ætlunin að setja úrslitakosti, þar sem skipt verður um skrá og þeir einir hafa aðgang að nýjum lyklum, sem skulda ekki í eldhússjóðinn og hafa gengið frá sómasamlega. 'Akveðið austur evrópskt par sem virðast vera aðalsökudólgar í þessu máli hafa brugðist ókvæða við og yrða varla á viðkomandi. Það ríkir ákveðin spenna í loftinu og hnúturnar fljúga.

Gaman verður að sjá hvað mun verða, enda löngu kominn tími til að setja mörk og reglur í þessu máli.

Skelli kannski inn hardcore myndum af eldhúsinu, ekki fyrir viðkvæmar sálir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Egill Egilsson
Egill Egilsson
Gamall ritjálkur sem hefur unun af því að rýna í mannlíf og umhverfi.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband