Leita í fréttum mbl.is

'Islendingurinn/Icelander

EsbjergHilsen:

Jæja, maður getur aðeins dregið andann léttara, eftir að hafa klárað þemaverkefni sem hófst í gær og lauk í dag. "Smá" verkefni í html, sem menn ýmist svitnuðu yfir eða kláruðu  á einfaldan hátt. Við Olaf börðum saman html og gerðum bara vel. Erum orðnir ansi sjóaðir að vinna saman, en stundum á Olaf það til að ergja mig, enda gamall múrsteinssmiður, eða  hvað við getum kallað hann, enda lagt margan múrsteininn í gegnum ævina. Hann samþykkir aldrei neina hönnun, nema að standa upp frá tölvunni, ganga nokkur skref afturábak og sjá hvort þetta sé allt miðjusett og fínt og "flútti" við tekstann, jafnvel þó að hægt sé að miðjusetja þetta í tölvunni. En þrár er hann og heldur fast í sitt, og svo ef tölvan virkar ekki, þá fær músin svo sannarlega að kenna á því.

Og svo er Olaf frekar lúmskur, er búinn að hlaða niður nokkrum góðum prógrömmum og ýsmu öðru smálegu úr tölvunni til að nota heima í tölvunni sinni. Þar að auki er hann lúnkinn og veit margt sem getur komið sér vel seinna. Var að segja honum frá skólatösku sem ég var að kaupa fyrir fartölvu og fleira, og þegar hann heyrði verðið, sem var reyndar ekki mikið, þá sagðist hann geta keypt samskonar tösku hjá öðru fyrirtæki fyrir helmingi lægra verð. Alltaf gaman að heyra svona, eftir að maður hefur fjárfest  í einhverju. Keypti reyndar um daginn einhverja hræbillega tösku í Tiger, sem rétt tekur við fartölvunni minni, tveimur bókum, og ekki meiru. Þegar ég ætlaði að opna hana í tíma, þá stóð lásinn á sér, og jafnvel þó ég væri búinn að slá inn kóðann, ekkert gekk. Að lokum neyddist ég til að rífa festinguna með lásnum upp. Þýddi ekki annað ef ég ætlaði að nota fartölvuna og námsbækurnar. Það er af þeim orsökum sem ég hef fjárfest í almennilegri tösku.

Nú, það er að bera í bakkafullan lækinn að tala um góða veðrið sem ríkir hérna. Enda gekk égheim léttklæddur eftir smá vinnu á vegum tövluversins í öðrum skóla. Fékk samt á tilfininguna að venjulegru dani þætti ég full frjálslegur, enda ennþá kappklæddir, enda skil ég þá vel, þegar allt síðasta sumar að hitastigið fór varla niður fyrir 30 stigin. Maður vonar að það verði allavegana gott sumar, miðað við veðrið sem spáð er næstu dagana.

Og svona til að tala um hið einstæða bankakerfi hérna, þá brá ég mér í Nettó, til að kaupa smáræði, á versta tíma, enda venjulegur dani hættur klukkan 3 að vinna. Þegar kom að mér í röðinni, þá tók ég upp nýja kortið mitt frá bankanum,  renndi því gegnum kortamaskínuna og fékk neitun. Sagði kassadömunni á minni ylhýru ísdönsku að hér væri um að ræða nýtt kort.  Hún bað mig um að prufa það aftur og enn fékk ég neitun. Þá leit hún á kortið og sagði að Nettó tæki ekki við slíkum kortum, þar sem þetta væri debetkort, en ekki Dankort, sem hægt er að nota allsstaðar. Röðin lengdist æ meir, og ef þessi sena hefði átt sér stað heima hefði  eflaust einhver verið farinn að ókyrrast  og talandi um að fjölga starfsfólki eða eitthvað slíkt. 'Eg varð því frá að hverfa, enda mun ég svo sannarlega tala yfir hausamótunum á þjónustufulltrúanum mínum, varðandi þessa pínlega aðstöðu að nota þetta kort.  Þjónustufulltrúinn hafði reyndar sagt að ég gæti notað kortið allstaðar, en það virðist eitthvað vera takmarkað.

Svona er nú Danmörk í dag.

Hilsen

Gilli

Hi from Gilly:

Well, finally a break from school. It has been hectic, to say the least, and today we finished a theme at school, so now I am taking  a breather, since I have been preparing myself for this theme for the last days or so.

The weather here is quite nice, ranging from 10-15 degrees on the Fahrenheit scale. And it is supposed to get better over the weekend. And I think that this is our last week at school before easter, so it will be nice to get some relaxation and rest. As usual easter will pass quickly, so it is wise to use all the time available to read and relax.

I wadoing some work today at the it-center, and I had to do some work at another school. Afterwards I walked home,  and I kinda sensed that some people thought that I had recently been released from a mental home, only in my t-shirt and black pants. Why do I think that, is because the danes I meet were in thick coats and had hats and looked like they were walking in 30 degrees frost. I think this is due to that last summer they had a record heat off 30 degrees every other day, s when they see me, they probably think that I am homeless or something else.

But I am accustomed to a weather like this from Iceland, and we seldom have record breaking temperatures like the danes at home. So I am just gonna enjoy while I can. Wouldn´t you?

Bye from Gilly

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Egill Egilsson
Egill Egilsson
Gamall ritjálkur sem hefur unun af því að rýna í mannlíf og umhverfi.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband