Leita í fréttum mbl.is

Vinur minn

Hilsen:

Jæja loksins sáu þeir aumir á mér hjá 3G símfyrirtækinu hérna og opnuðu  samband við umheiminn. Hafa eflaust ekki haft neitt að gera og ákveðið að opna svona sér til dægrastyttingar nokkur símanúmer. Fallegt af þeim. Hrigndi í náinn vin minn, og komst að því að líf hans hefur tekið miklum stakkaskiptum. Vil ekki fara nánar út í þau efnisatriði, en vil bara  segja að stundum finnst manni sem óréttlætinu sé ójafnt deilt. Þessi náinn vinur minn hefur ætíð verið boðinn og búinn til að hjálpa manni og öðrum, annaðhvort með skilningi eða laumað að manni einhverju smálegu. Oft hefur maður haft á orði við hann að maður muni borga honum seinna tilbaka, en hann hefur aldrei viljað heyra á það minnst. Hann hefur verið duglegur og komið sér vel fyrir í sínu lífi, eignast mannvænleg börn  og góðan maka. Nú bregður svo við að yfir heimilinu geisa erfiðir tímar, þar sem vinur minn þarf að endurmeta líf sitt og sinna nánustu á nýjan leik. Afsakið að ég fari ekki nánar út í málið, en ég geri þetta af trausti við vin minn.

Það sem ég sagt vildi hafa, er það að þessi vinur minn hefur reynst mér ætíð svo vel og öllum þeim sem hafa leitað til hans, að hann á inni hjá mér núna og svo lengi sem ég lifi, að ég muni standa við hlið hans í hans raunum hvað sem á bjátar. Hann á það svo sannarlega skilið. Hann fer ekki í manngreiningarálit og hefur aldrei sett verðmiða á nokkurn mann. Hann hefur haft það að leiðarljósi að lifa sáttur við sitt og sína samferðarmenn, og aldrei hallmælt nokkrum manni. Þegar atburðir sem slíkir henda mann eins og hann, þá spyr maður, af hverju hann? Af hverju ekki ég, eða einhver annar?

Erfitt um svör. Kannski segja menn, svona er lífið, en stundum finnst maður lífið óréttlátt. Mér finnst það núna, eftir að hafa talað við vin minn. 

En ég mun hugsa til hans og fjölskyldunnar og vona að úr rætist. Annað er ekki hægt.

Hilsen

Gilli 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Egill Egilsson
Egill Egilsson
Gamall ritjálkur sem hefur unun af því að rýna í mannlíf og umhverfi.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband