15.2.2007 | 09:10
The link
Hi again:
Forgot the link:
http://www.youtube.com/watch?v=x0_xuws9nds&NR
Take a look at it.
Bye
Gilly
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2007 | 09:05
Youtube.com
Jæja sæl verið þið. Maður er kominn aftur á flug við upplestur á námsefni og fleiru. Setti upp forrit í fyrradag og reyndar er tölvan orðin svo smekkfull og hæg að það stefnir í að uppfæra hana á nýjan leik, enda hefur maður verið að setja inn forrit og bækur sem maður hefur sótt á netið. Hvar væri maður staddur ef maður hefði ekki internetið. Tek sem dæmi, að ef maður er eitthvað blankur og þarf að kaupa sér rándýra bók, þá snýr maður sér að leitarvélinni google.com, slær inn bókina og stuttu seinna er maur byrjaður að hlaða hana niður.
Hlóð um daginn 700 síðna bók varðandi námsefni, enda þessa dagana er maður skítblankur út af þessarri aðgerð. Enda er maður að reyna að sækja rétt sinn varðandi dagpeninga í danska skattkerfinu. Eins og gengur og gerist í möppudýrakerfinu, þá þarf maður að fylla út endalausa pappíra og svo þarf maður að koma þessu öllu frá sér fyrir vissan tíma.
Nú og svo til að mæra enn eitt skemmtilegasta við Netið, er youtube.com, sem inniheldur margt skemmtilegt, eins og komið hefur fram á þessum bloggpistlum. Hér er skemmtilegur grínþáttur, um þegar Bush er forvitnast hver er næsti forseti Kína:
http://www.youtube.com/watch?v=x0_xuws9nds&NR
Nokkuð góður og maður getur brosað út í annað.
Af öðrum "domestic" málum hér innanlands í Danmörku er það að frétta að fyrir skemmstu kom það fram í dagblaðinu 24timer að bandarrískt flugmóðurskip sem statt var í höfn í Kaupmannahöfn í október síðastliðnum, hafi meinað þyrlu að fljúga innan 5.3 km radíusar frá skipinu. Um borð í þyrlinu var kvikmyndatökuteymi sem var að mynda fyrir vinsælan sakamálaþátt sem heitir Anna Pihl. Þegar þyrlan flaug nálægt flugmóðurskipinu var haft samband við hana frá flugmóðurskipinu og henni bent á að yfir skipinu ríkti no fly zone, og ef flugmaðurinn færi ekki eftir þessu þá yrði hún skotin niður, með eldflaug.
Eins og gefur að skilja hefur þetta vakið upp umræður hvort Bandarríkjamenn geti ákveðið upp á sitt einsdæmi flughelgi yfir skipum sínum og þá með tilliti til svæðisins sem þeir afmarka, og þá einnig með þessarri hótun, sem menn deila um hvort hafi verið sögð eða ei. Þar að auki finnst mönnum að með þessu athæfi sé sýnt enn meir fram á varðandi hysteríu bandarríkjamanna um hryðjuverk, og að það sé ekki til fyrirmyndar að æpa stöðugt úlfur úlfur, þegar enginn voði var á ferð. Hvað varðar kvikmydatökuteymið, þá er framleiðandinn ósáttur við þessa skipun þar sem hann hafi tapað 40.000 dkr þennan dag út af þessarri skipun frá flugmóðurskipinu.
Svona til að bæta við þetta í lokin, þá er ég svona inn á milli námsefnis að lesa bók sem heitir The Bushes, en bók sú fjallar um uppruna George W. Bush, og verður að segjast eins og er að bókin er áhugaverð fyrir margar sakir. Myndin sem fylgir þessarri grein er kannski nokkuð lýsandi dæmi um "tak" bandarríkjamanna á heiminum í dag. Myndin er reyndar tekin í Amsterdam og satt að segja minnir mig að þetta hafi verið eitthvað grín í gangi, engin alvara að baki, enda hefði ég ekki gengið lifandi frá þessum atburði ef svo hefði verið.
Hilsen.
Hi from Gilly:
Well , lazyboy is back reading the teaching material. I think I am gonna ask for my next xmas present a chair called "lazyboy".
I have also in between reading been watching youtube.com, and found this link, it is about when president Bush is enquiring Condelezza Rice about who is president of China. Take a look at it.
Also I am reading a book called The Bushes and this book is about the forfathers of president Bush, and it is actually very interesting.
In the domestic news, I was reading about an incident that happened in the harbour of Copenhagen in october. A danish filmcrew was flying above an american battleship , to add some footage for a popular danish show called Anna Pihl. When flying closer to the ship they received a message from the ship that if they didnt pull away the helicopter would be shot down, on the grounds of that there was a no fly zone over the ship, and the helicopter was violating that fly zone.
This incident has cause a lot of discussion about the reigning authority of the Americans and also the threat that followed, and not many danes are very happy about that a battlehsip can control the airzone over Copenhagen. The arizone was limited to a range of 5.3 km, so that is wide stretch of airzone.
The debate is also about why the major of Copenhagen didnt make a complaint, instead of being manipulated by the american authority of the battleship. And the producer of the film crew is also wondering who to sue for the 40.000 dkr that he lost that day. The picture following this article is maybe a good example of the "grip" that reigns in the world concerning terrorism. the picture was taken in Amsterdam, and I think this was some street display, a comedy act.
Well, time to get ready for my visit to the clinic.
Bye from Gilly
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.2.2007 | 20:29
Endalaust faðmlag/Endless hug
Hilsen:
Ok, það verður að viðurkennast, maður er einfaldlega latur þessa dagana, það er eitthvað slen í gangi. Fór að vísu í dag niður á klinik í hefðbundið skipti á umbúðum, og kom reyndar út frekar áhyggjufullur, þar sem viðkomandi hjúkka vildi meina að hugsanlega þyrfti ég kannski að fara í aðra aðgerð til að fjarlægja einhverjar dauðar húðfrumur í sárinu. ÆÐISLEGT, get ekki sagt að þetta hafi vakið mikla gleði hjá mér. En að sjálfsögðu mun læknir ákveða frekar um það þegar ég fer í næstu læknisheimsókn mína innan tveggja vikna eða svo. Nú eftir þetta, fór ég niður í Grádybet, en það er skóli þar, en ég er svona lausamaður í tölvuveri skólans, og er þessi skóla í umsjá skólans. Þar vorum við að hlaða niður (downloada fyrir þá sem skilja ekki orðið hlaða) niður nýrri útgáfu af Windows XP. Eftir tvo tíma var ég farinn að finna til mín, þannig að ég kvaddi gengið.
Svona til að fá útrá, þá skil ég ekki eitt, hvernig stendur á því að þegar maður leitar til opinberra stofnanna, að þar fyrirfinnast fáir sem tala ensku, og enn skrýtnara er það að senda manni bréf og fleira á dönsku frá þessum opinberum fyrirtækjum. Maður spáir í þetta, af því að í landinu eru að því talið er yfir 30.000 innflytjendur, og mér er til efs að þeir séu altalandi á dönsku þegar þeir leita sér félagslegrar aðstoðar. Þannig að það er von að maður spái í þetta. Einu sinni, þegar ég var nýkominn hérna og var að "melda" mig inn í þjóðfélagið, varðandi cpr, sem er kennitalan hérna, þá spurði ég viðkomandi hvort hún talaði ensku, og hún sagði já, og hélt áfram að tala dönsku. Fyndið.
Jamm. Allavegana í gær, þá voru ég og Mustafa, nágranni minn á þessarri hæð, alveg að klikkast úr hlátri, Fyrir þá sem þekkja til youtube.com þá er margt skemmtilegt þar, og þar á meðal eru upptökur úr American Idol, frá hinum og þessum löndum, og svo X-Factor. Mustafa hafði verið heima hjá sér um he lgina og dottið inn á þátt frá hinu sænska American Idol, og var enn að hlæja að einum þáttakandanum. Ég ætla að láta nokkra linka fylgja hérna og um að gera að kíkja á þetta. Og svona í lokin er linkur þar sem einhver háðfulg, tekur fyrir Courtney Love og Pamlu Anderson, gjörsamlega móðgar þær upp úr öllu valdi.
http://www.youtube.com/watch?v=_t1W3U2Nm_I
http://www.youtube.com/watch?v=8Zop1vwwKE8
http://www.youtube.com/watch?v=gKs0_RHIPxw
sláið siðan inn á leitarvélina: courtney and pamela roasted. Gat ekki sett inn linkinn þar sem viðkomandi video inniheldur slæmt orðbragð. Prufið að kíkja á þennan link. Og svo í restina:
http://www.youtube.com/watch?v=fN1dPtEph2U Þessi er frábær.
Nú svona í lokin, þá er hérna mynd af "pari" sem er búið að liggja í faðmlögum í 5.000 ár. Geri aðrir betur.
Til hamingju með Valintínusardag, allir kvenkyns lesendur mínir.
Hilsen
Gilli
Hi from Gilly:
I have a confession to make. I am lazy, I have realized this for the past days now. Maybe it is the winterbreak, maybe too much reading last week, or just I was born like this. Hard to say. But I managed in my laziness to go to the clinic and to get a question from my nurse if I might need another operation to reomove dead skin cells in the former operation. NICE, I cant say I was jumping with joy when I came out. So afterwards I went to the IT-Center at the school and did some work for two hours or more. Then I could feel that I couldnt do more that day, so I signed off to go and do some personal work for myself. That included talking to a official organization concerning my rights for some sickmoney, and to tell you the truth, after trying to understand the danish person, who only spoke in danish, and couldnt speak any english, it just made me more mad. Afterwards I thought, are the danes stupid? I mean there are like over 30.000 immigrants in the country, and it is kinda dumb to make the demand that they all understand and speak danish. I have come across this in official letters sent to me and other people at the kollegiium, and also in the official sector. It is more of a majority that they speak danish to you, as their english knowledge is limited. Even at the hospital, most of the doctors had a hard time at explaining to me in english about some medical facts.
Last nigt me and Mustafa were laughing at some flicks from youtube.com. I have put the links here for those interested to look at:
http://www.youtube.com/watch?v=_t1W3U2Nm_I
http://www.youtube.com/watch?v=8Zop1vwwKE8
http://www.youtube.com/watch?v=gKs0_RHIPxw
http://www.youtube.com/watch?v=fN1dPtEph2U
Have a good time.
And as my final lazy words, here is a picture of a couple who were discovered after a dig. They were found in this position, embracing each other, for nearly 5.000 years. That is a nice hug, and a record breaker.
To all my female friends, Happy Valentinsday, miss you all.
Bye from Gilly
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.2.2007 | 20:57
Vetrarfrí/Winterbreak
Heil og sæl:
Jæja, maður er allur að koma til, er hættur að hreyfa mig um eins og gamalmenni og orðinn liðugri. Vaknaði eftir ágætis "tortillapartý" á fjórðu hæðinni, en þegar ég og Chris, kíktum í gær þá voru íbúarnir á fjórðu hæðinni að undirbúa allsherjar tortilla mat, með kjöti, paprikum quatamole sósu, jalapeno go ýmsu fleiru góðgæti. Fyrst þegar við komum voru svona 10-15 manns mættir, en eftir klukkutíma eða svo var hópurinn orðinn þetta 30 manns, og þegar allri matargerð var meira en nóg til handa öllum. Þó má segja að eldhúsið hafi ekki verið kræsilegt á að líta, enda er þetta eldhús ekki vinsælt hjá þrifadeild Ungdomsbo á mánudögum. En allavegana góður matur og skemmtilegur félagsskapur.
'I dag er ég búinn að vera latur, vakanði sem fyrr segir, fór niður á klinik, rölti í gegnum skóginn, og þó kalt væri í veðri, þá voru fjölmargir dúðaðir danir á ferð. Var að velta fyrir mér hvort hjúkkan sem meðhöndlaði mig hefði lent í einhverju leiðindum, því að hún reif plásturinn rólega af og svo þegar kom að neðri hlutanum, þá svipti hún honum af með rykk. Von að maður pæli, eins gott að þessar hjúkkur séu ekki illa upplagðar, nógu mikið er á þær lagt.
Þannig að ég hef nú mest lítið setið við lærdóm, enda tel ég mig hafa verið ansi duglegan undanfarna viku, við að gera æfingar í flash, database, html, og að lesa fleiri fleiri síður í business og marketing. Réttlæti fyrir sjálfum mér, tilganginn að eiga frí í dag. Enda erum við enn á ný komin í vetrarfrí, frá 12 til 19 febrúar, þannig að sá tími verður notaður grimmt, heima og upp í skóla.
En svona til að sýna ykkur að ég hef ekki verið með öllu latur þá ætla ég að kynna fyrir ykkur nokkur ótrúlega léleg og illa hönnuð umslög og einnig, verstu tattú sem menn hafa skellt á hina og þessa staði. Bara með því að horfa á þessi tattú þá koma upp margar áleitnar spurningar um andlegt heilbrigði viðkomandi og um leið hvort að sá hinn sami hafi verið með vitund þegar hann ákvað að fá sér viðkomandi tattú. Um leið hef ég sett inn mynd frá ferð minni til Hollands árið 1991. Mun setja inn fleiri myndir á næstu dögum. Er allur að koma til, get setið lengur við.
Byrjum á plötumslögunum:
Plötumslög/Worst ever record covers
Takið eftir textanum á plötuumslaginu, ekki hægt að segja að hann sé laus við fordóma/Notice the text on the record cover, hard to say that is without prejudice
vinsæl hjá kindariðlurum/
This one is probably popular
with sheeplovers
Verstu tattú/Worst tattoos
'Urslít í GrandPrix 2007/Results from the GrandPrix 2007
Þá eru úrslitin kunn hvað varðar hvaða lag danir senda í Júróvisjón keppnina til Helsinki. Lagði sem valið var heitir DQ, eða Drama Queen, sem söngvarinn Peter Andersen syngur í gervi dragdrottningar. Þetta ku ekki vera hans fyrsta skipti í gervi dragdrottningar því að hann ferðast um Danmörk þvera og endilanga með bandið sitt "Turn on Tina, og flytur sólósjóvið sítt í dragi. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem danir senda frá sér slíkt atriði í Júrvisjónkeppnina. Sjálfur segist Peter hlakka alltaf meira til Júrvisjón en jólanna. Lokaúrslitinn fóru fram í Horsens um og á meðal keppenda var annar bróðirinn úr Olsen bandinu með lag sem heitir, Við elskum bara danskar stelpur. Sá brot af þessarri keppni og var eiginlega búinn að veðja á annan hvern flytjandann, fanns eiginlega ólíktlegt að hálfur Olsen myndi keppa í ár, enda varð raunin önnur. Vill þó vekja athygli á fatnaði DQ eins og hann er kallaður, að það er ekki laust við áhrif frá Sylvíu Nótt.
The results are finally clear in the Danish Grand Prix for the song which will be sent to the Eurovison Song Contest in Helsinki, in May. The song from Denmark this year was chosen the song DQ, or the Drama Queen with the singer peter Andersen who sings the song in a drag. This is the first time the Danes send a participant dressed in drag in this Song contest. It will be curious to see how well it will go, considering that LORDI from Finland, dressed as monsters won last year, so who knows. The above picture is of the singer Peter Andersen in his drag.
LAZY
Yes today I have been lazy, because we have a winterbreak once again. So I just went to the clinic, and I am still wondering if the nurse who treated me had a bad weekend, becasue she slowly pulled the bandage of, and then suddenly she tore it of, and that as I have said is much worse than what follows afterwards. So after I came home I have just been kinda moping around and I came across this website with these unbeliveable record covers and tattoos. But tomorrow I am gonna be busy, I am getting better so I can sit now longer, so I am gonna keep on learning more in database and so on. The picture above is taken when I went to the Netherlands with my girfriend around 1991, we traveled around Netherland in trains and jumped off in some cities. There will be more pictures from the Netherlands in my next blogs.
Until later
Gilly
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2007 | 20:51
Meðal annarra orða/Words of interest
Hilsen:
Sigrassar
Hafið þið heyrt um "hængerröv" Það er danska heitið yfir hangandi rasskinnar unglingana í dag, enda þykir það ekki fögur sjón að sjá lafandi rassa ásamt misfögrum undirklæðum skína uppúr gallabuxunum, sem virðast vera loftlausar þar sem rasskinnar eiga að fylla upp í. Lengi vel hafa menn lítið amast við þessu, en nú gerðist það að skólastjóri við einn unglingaskólann í Hjerting í Esbjerg fékk nóg af þessu og hefur lýst því yfir að ef fleiri slíkir sigrassar sjást í umferð, þá munu umræddir rassar þurfa að hysja upp um sig brækurnar og hætta frekari skólagöngu. Þetta hefur náttúrulega vakið mikil viðbrögð bæði jákvæð, í meirihluta, og neikvæð í minnihluta. Enda foreldrar nánast valdalausir hvað varðar það að hafa áhrif á unglinga í dag, enda hvað vita foreldrar um unglingatískuna í dag? En allavegana þau boð hafa látin vera ganga að nú er nóg komið, hysja upp um sig brækurnar áður en menn mæta á skólalóðina. Einnig hefur umræddur skólastjóri, svoa til að mismuna ekki kynjunum, einnig sett frekari bann við skorur og magarými, það er, stelpur eiga að hætta að láta sjást í magann á sér og um leið að sleppa því að mæta í flegnum bolum án brjósthaldara. Forvitnilegt verður að fylgjast með frekari viðbrögðum við þessu.
Móðir, hvar er barnið þitt?
Flestallir ef ekki allir þekkja þennan texta hans Bubba, sem hann gerði ódauðlegan eftir að kynferðisglæpamaður misnotaði unglingsstúlku fyrir mörgum árum síðan. Þetta eru þörf skilaboð og í dag, þegar börn ráfa um netheima annaðhvort á spjallrásum eða í tölvuleikjum, eftirlitslaus, og ekki síst þegar unglingar byrja að prófa að reykja og drekka án vitundar foreldra, ásamt ýmusm öðrum hættum sem fylgja þessu, þá er ekki þörf á að foreldrar hafi vakandi augu með börnunum sínum. Miðað við það sem maður hefur lesið að heiman að undanförnu, hvað varðar barnaníðinga sem eru að reyna að ná sambandi við börn á spjallrásum, nú eða þá að plata þau upp í bíla til sín, þá veltir maður fyrir sér hvort menn ættu ekki að staldra við og spá í hvað nágrannaþjóðirnar eru að gera. Las um daginn að danskir foreldrar séu að ráða spæjara til að fylgjast með börnum sínum, án þess að þau viti, þegar þau eru úti að skemmta sér, þ.e. unglingarnir. Umræddir spæjarar fylgjast með því hvort unglingurinn sé í slæmum félagsskap og einnig hvort hann sé farinn að neyta eiturlyfja. Eins og gefur að skilja eru ekki allir sáttir við þetta, hvað varðar persónuvernd, og um leið spurningu um traust foreldra gagnvart börnum sínum, en miðað við ástand mála og hversu hart er gengið fram í því að laða unglinga í eiturlyfjaneyslu, þá er það náttúrurlega spurning að bregðast við með einhverjum hætti. Umræddir spæjarar segjast hafa meira en nóg að gera eins og er, enda umræðan í flestum tilfellum jákvæð varðandi starfsemi þeirra.
Ný andlit
Brá mér upp á fjórðu hæðina í gær, en eins og komið hefur fram í umræddum bloggpistlum mínum, þá er það hæðin þar sem flest partýin byrja, áður en menn fara annaðhvort niður í bæ eða í kjallarann. Þegar ég kom upp í gær voru inn á milli kunnugleg andlit og líka ný andlit, fersk og með eftivæntingu í huga, að kynnast nýju landi og nýju fólki. Smellti nokkrar myndir. Setti inn einnig mynd sem tekin var þegar ég gerði grein um Sniglabandið og flæktist með þeim á allskrautlega útihátíð í Húnaveri um verslunarmannahelgi fyrir nokkrum árum síðan. Myndin segir allt sem segja þarf. Læt þetta nægja að sinni.
Hanging ass
Finally, a headmaster at one of the college´s in Esbjerg gave up. He had had it, seeing all his pupils walking around with half of their bare bottoms sticking up from their lowraised jeans. And not to be on the unfair side, he thought that he had to reprimand also the girls for their display of tummies and cleavage, so he passed the word, that if this will keep on, those with hanging asses and cleavages will be expelled from school. As to expect the not everybody is happy, especially those who have their asses on display, but the parents seem to praise this, finally, because they have lost hold of their kids fashion, so this is a heaven sent message.
Someone to watch over me
Well I know that some of my readers have not yet gone into birth, but hsoe who have kids today probably face all the same problems as we did when we were growing up, when our parents were asking us these really annoying questions, like were did we go, did we smoke, were we drinking and so on. Today, with the internet and also drug trafficking at schools and in bars, it is a question to keep more track of your kid. To solve this, some danish parents have hired spies to follow their kids on weekends to check if they are doing drugs, drinking or sabotage. This these parents say makes them more content about their kids, and also secures them that they dont have a problem kid. Of course like in all circumstances like these not many are happy with this BigBrother watching over kids, but of course the question arises, if you dont do it, who will?
Last night I was feeling good, and after talking to Ewa on msn I decided to check on the 4th floor, and those who have been know that the 4th floor is the main party floor in all aspects. As beforesaid there are many new faces at the kollegiium and last night some of these faces appeared to check up on the old faces. Took some snaps, that is not drinks, pictures. Enjoy.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2007 | 20:29
'Itölskukennsla/Italiancourse
Hilsen:
Jamm, jamm og jæja. Þá er kominn föstudagur og ég er aðeins skárri. 'Atti von á heimahjúkrun, en dæmið snerist við og ég rölti niðureftir á klinikið, eða heilsugæsluna þar sem hjúkkurnar vinna. Ekki veit ég hvað skal halda, en samkvæmt hjúkkunni þá verð ég fastagestur þarna næstu vikurnar. Hún var að lýsa fyrir mér skurðinum eftir kvenskurðlæknana. og miðað við fingrafimi hennar, þá hefði hún alveg eins getað lýst fyrir mér hversu breitt og hátt Miklagljúfur er. Allavegana er langt íland með að ég gangi uppréttur næstu vikurnar. Fór í fyrsta sinn í dag upp í skóla, og var tekið fagnandi af nokkrum bekkjarfélögum mínum. 'Astæðan fyrir því að ég rölti þangað var sú að í dag átti að fara fram mat á verkefninu okkar sem við unnum að í byrjun janúar. Það verður að segjast eins og er að í þessum beek eru miklir hæfileikamenn, enda heimasíður og frágangur til fyrirmyndar og reyndar margt af því sem gert var, verður ekki kennt fyrr enn á þriðju önn, en hver getur stoppað námsfúsa nemendur sem nenna ekki að bíða eftir því að kenna fag sem þeir hafa þegar, "been there, done it, seen it" tileinkað sér hugsunarhátt og eru orðnir ansi sleipir. Þo gátum við ekki annað en brosað þar sem ein, nokkuð eldri en ég og mjög, sérstæð kona, var að myndast við að sýna okkur vefsíðu sín og samstarfskonu sinnar og þegar hún var beðin að klikka á einhvern linkinn þá skyldi hún ekkert í því af hverju stikan sem hún var með og þrýsti sitthvað á sýningartjaldið ýtti ekki við linknum. Þar að auki tók hún upp á því að kenna okkur, hvernig ætti að stækka og minnka myndir í Works, þá voru sumir orðnir ansi herptir í andliti af niðursoðnum hlátri. Þetta er ekki illa meint, en konugreyið er mjög sérstætt, og þegar hún hefur upp rödd sína þá fórna menn höndum, því að spurningar hennar eru mjög illa ígrundaðar og oftast nær langar orðræður og hún löngu búin að tapa þræðinum. Þar að auki afrekaði hún það að mæta alltaf seint fyrir áramót, og bjó þó í 2 mínútna gang frá skólanum. En samt tókst henni að mæta klukkustund seinna, og eitt skiptið mætti hún 1 1/2 tíma of seint. Fyndnast var þó af öllu þegar hún mætti seint, sem var daglega, að hún opnaði hurðina, stakk hausnum inn til að athuga hvort kennarinn væri inni og ef svo var, þá kom hún á fullu skeiði inn, renndi sér í sætið sitt fremst og með þvílíkum tilþrifum og látum tók upp úr töskunni sinni. Klæðaburður hennar minnir á gamla hippakerlingu, furðuleg samsetning af appelsinugulum T-bolum , og einhverri síkadeliskri regnbogablússu undir, og svo er hún oftast nær í einhverjum gauðslitnum gallabuxum og heldur þvílíkt fast í töskuna sína, að það mætti halda að hún geymdi krúnudjásn í tuðrunni. Nú er búið að setja skorður á að mæta seint og menn fá að mæta 5 akademískar mínútur of seint, en ef menn koma 10 eða 15 mínútur of seint þá eru þeir vinsamlegast beðnir að standa frammi á meðan kennslustund fer fram. Eitthvað hefur þetta síast illa inn í kollinn á vinkonu okkar sem enn bisast við að mæta, of seint. Merkilegast af öllu er þó að sjálf var hún kennari, kenndi innflytjendum dönsku. Það hefur verið lúxus að vera íþeim kennslustundum, miðað við mætingar, en hvað varðar kennsluna þá hef ég mínar efasemdir, eflaust hafa margir hreinlega gefist upp á að læra dönsku þegar hún átti í hlut, þar sem henni tekst varla að halda athygli kennarana nógu lengi, enda reyna þeir hvað eftir annað að beina umræðuefninu eitthvert annað þegar hún hefur upp raust sína.
Nú jæja, hef þetta ekki lengra, en ætla að reyna að planta inn link hérna um ítalskan mann sem fer til möltu og mætir aðeins misskilningi þegar hann reynir að tala við þarlenda.
http://www.youtube.com/watch?v=m1TnzCiUSI0
Kíkið á þennan link, hann er alveg frábær. Maður liggur í gólfinu.
Hi there:
Well I am slowly recovering. According to my nurse, it will take more than 14 until I can kinda start doing more or less that I was doing. It seems that I will just have to take each day as it comes. The nurse was trying to tell me how big my cut is and after seeing her juxtaposing her hands it came out like she was describing to me, the size and height of the Grand Canyon in the States.
I will just have to hope for the best. Today I "crawled" to school, this I did because we were having our evaluation of our project work. It looks like we have really a good class of many talents, and the websites that they presented were really professional and many things implemented that we are suppose to learn about next semester. At the moment I am reading up on my studies since last semester, trying to keep pace also with the ongoing assignments in school. This I am doing because we have exams in june, and best to use this sickness time of mine to read up. And it seems that i will have ample time, because we are once again entering a break in regular school, because of the winterbreak which will be for a week. So I am off for another week. Believe I will use that week wisely.
Well I have to go now, my backside is getting a little bit tired, so I need to take a rest. I put in a link, I think some of you have seen it, it is about this italian who goes to malta and "experiences" alot of trouble in language barriers. Take a look at it.
http://www.youtube.com/watch?v=m1TnzCiUSI0
Until later my 100 readers, yes you read it right, 100 readers this week.
Bye from Gilly
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2007 | 23:39
Dauða ljóskan/Death of a blonde
Hilsen:
Hef lítið getað sinn ritsnillinni í dag. Fékk í heimsókn tvær hjúkkur, ein eldri og önnur yngri, og sú yngri er að læra fagið, og óafvitandi er ég náttúrulega ágætis "sýnishorn". Allavegana er ég búinn að vera hálfaumur eftir heimsókn hjúkkunnar, hún einhvern veginn beitti öðrum aðferðum en sú sem kom á mánudaginn var. En nú stendur til að ég fái heimahjúkrun hvern dag, næstu þrjár vikur.
'Eg var að renna í gegnum mbl.is þegar ég rak í augun í að "fyrirsætan" Anne Nicole Smith hefði látist þennan dag, aðeins 39 ára að aldri. Anna Nicole Smith varð fræg fyrir að sitja í Playboy árið 1992. 'Ari seinna, 1993 var hún kosin Playboystúlka ársins. Eftir að hafa birst í því hefti var henni líkt við Marylin Monroe, enda gerði hún út á að líkjast henni hvað varðaði hárgreiðslu, og vörumerki hennar, var líkt og Marylin, hvítur kjóll. Þó varð Anna Nicole meira þekkt fyrir íturvaxinn barm sinn, sem einnig má segja að hafi verið hennar aðgöngumiði innan Playboyveldisins. Líkt og fyrirmynd, var Anna Nicole Smith ekki hennar rétta nafn, hennar rétta nafn var Vicky Lynn Hogan, en nafninu breytti hún þegar hún giftist Billy Smith.
Þann 27 júní 1994, 26 ára gömul giftist hún, olíu og milljarðamæringnum, J. Howard Marshall, sem þá var 89 ára gamall, en honum hafði hún kynnst þegar hún vann sem fatafella í Houston þaðan sem hún er ættuð. Það hjónaband varði ekki lengi, þar sem sá gamli lést stuttu seinna, eða 4 ágúst 1995, sæll lífdaga. Eins og gengur og gerist, þá spruttu upp margar kjaftasögur um samband hennar og olíumillans, þar sem þau bjuggu aldrei saman, og hefur hún sagt í viðtölum að sá gamli hafi endilega viljað giftast sér og þrábeðið sig um það. Honum var allavegana að ósk sinni. Eftir það hjónband lenti hún í llvígri deilu um auð olíumillans við son hansog fjölskyldu. Sú deila hefur í meira en áratug verið á þrætuepli í dómssölum og hafa skipst á skin og skúrir í þeirri deilu. 'A meðan þeirri deilu stóð reyndi Anna Nicole fyrir sér í kvikmyndum með misjöfnum árangri, og árið 2006, þá orðin tágrönn, en líkt og mál hennar fyrir dómsstólum hafði þyngdin á henni sveiflast sitt og hvað, jafnt í slúðurblöðum sem og á vigtinni. Hún varð að endemum fræg þegar hún á verðlaunahátíð MTV í 'Astralíu, beraði bæði brjóstin, og sló þar við búningavandræði Janet Jackson. Þó voru illar sögur uppi um það að hún hefði undir áhrifum annarlegra efna þegar hún reyndi að kynna atriðin. Fyrir skemmstu lýsti hún því yfir að hún og lögmaður hennar til margra ára, Howard K. Stern hygðust gifta sig og jafnframt að hún væri ólétt. Stuttu seinna lést sonur hennar við frekar" ananrlegar" aðstæður, þegar hann heimsótti móður sína á spítalann, til að líta á nýfædda systir sína. Og nú er hún sjálf fallin frá. Merkilegt lífshlaup, þó það verði ekki rakið hérna til fulls.
Nú spyrja menn hví ég sé að rekja sögu þessarrar ljósku, eða bimbo, eins og kaninn kallar þær. 'Eg rak nefnilega augun í það að það er margt líkt með þessum ljóskum. Báðar voru þær holdgervingar ameríska draumsins um útlit og framkomu og um leið voru þær draumastúlkur kanans. Þó að leikhæfileikar Monroe hefðu ekki verið miklir, þá hafði hún það mikla útgeislun að hvar sem hún fór, vakti hún mikla athygli. Líkt og með Anna Nicole Smith, var Marylin Monroe ekki hennar rétta nafn, hennar rétta nafn var Norma Jean Mortenson, sem hún breytti síðar meir í Norma Jean Baker. Það var síðan hæfileikaspæjari sem uppgötvaði hana, en áður höfðu birst myndir af henni í blaði sem gefið var út fyrir hermenn. Að ráði hæfileikaspæjarans tók hún upp nafnið Marylin Monroe, sem var móðurnafn hennar. Smátt og smátt fetaði hún sig áfram upp metorðastigann og eftir að nektarmyndir af henni komust í hendur Hugh Hefner, þá var hún boðuð í myndatöku og þar með var brautin greið.
Ef menn bera saman þessar tvær ljóskur, Marylin og Anna Nicole Smith, þá kemur margt líkt með þeim. Monroe fær sínar fyrstu myndir birtar í desember hefti Playboy 1953, Anna Nicole er kosin Playboystúlka fyrir árið 1993. Þegar Monroe lést var hún 36 ára að aldri. Anna Nicole var 39 ára þegar hún lést. Einn af eiginmönnum Marylin Monroe,var hafnaboltastjarnan Joe DiMaggio, og þegar Anna Nicole lést þá var það á JoeDimaggie spítalanum. Og svona í lokin, þá langar mig til að birta hér tvær myndir, annarsvegar af Monroe og hinsvegar af Smith. Og hvað vill ég meina með þessum samanburði? Jú, seinni ljóskan reyndi allt hvað hún gat til að líkjast goðinu sínu, og merkilegt nokk má segja að hún hafi verði holdgervingur Marylin á þessarri öld, þó að líf hennar hafi kannski ekki verið sveipað miklum dýrðarljóma í lokin. En báðar þessar ljóskur vissu sem svo að þær höfðu það framyfir aðra háraliti, að vera eftirsóttar og vinsælar hvar sem þær fóru, og það hefur eflaust ekki spillt fyrir þeim að hafa haft réttan háralit þegar þær umgengust forseta, stjörnufans og aðra minni spámenn. Þær notuðu báðar útlit sitt til að ná frama og frægð og fyrir þær þýddi ekkert annað en að viðhalda þeirri frægð, annaðhvort með því að leika í kvikmyndum, bera sig, eða verða sér úti um svokallaða "sugardaddies" kallar sem áttu peninga. Monroe var að mörgu leyti klárari, því að hún krækti sér í rithöfundinn Arthur Miller, en illar tungur segja að það hafi aðallega verið til að losna við stimpilinn sem fylgdi því að vera ljóska.
Þannig að það er margt líkt með þessum ljóskum, en þó verð ég svona í lokin að viðurkenna að ég var Marylin og mun ætíð verða Marylin Monroe aðdáandi númer eitt. 'Eg átti innrammaða mynd af henni, sem fylgdi mér í gegnum ýmsa flutninga, en að lokum kom að hún varð að fjúka eftir einn flutninginn.
Hi from Gilly:
I havent been all that well today, I had a visit from two nurses, a older one and a younger one, who is learning the trade of nursing. In some way or another this nurse managed to treat my a little bit different, that is to say the older one, and I havent been well after she left. Maybe another tactic, who knows. I was ready to go to sleep when I came across the news that the actress and once to be millionaire inheritor, Anne Nicole Smith had died today. When I started to read about it, I started to see similiarities to her death and the one of Marylin Monroe when she died. To make a long blog short, the similiarities are kinda similar. Marylin Monroe died at the age of 36. Anne Nicole Smith was 39 when she died. Both had original names. Marylin birth name was Norma Jean Mortenson, while Anne Nicole name was Vicky Lynn Morgan(the smith name she took up after her marriage with her first husband, Billy Smith) Both had been discovered by the magazine Playboy, Marylins Monroe pictures appeared in the december edition in 1953. Anne Nicole Smith was chosen Playmate of the year 1993. Marylin Monroe married amongst many others, Joe DiMaggio, a famous baseball player. When Anne Nicole Smith died, she died at the Joe DiMaggio Memorial Hospital. After her first photo shot in Playboy she was thought to be the "new Marylin Monroe" and she adopted that by wearing the same hairstyle as Monroe and also wearing a white dress, which was Anne Nicole Smith trademark, besides her humongous breasts, and in her later years she had slimmed down rapidly, not losing her figure concerning her breasts. Both enjoyed the company of wealthy and famous indiviuals, and even though Anne Nicole Smith didnt manage to make much of her carrier in movies, she made it up in press appearences, and her latest antic, was when she bared her breasts at the MTV Music Awards in Sydney, in the year 2005, to spoof out Janet´s Jackson "wardrobe malfunctioning".
So in a way, the death of Anne Nicole Smith is a the death of the American dream once again, because like Smith, Monroe was the dreamgirl of every young American. Her blonde hair and figure was a trademark for american dream, and in a way she a icon for later to come models, Jayne Mansfield, and later on Madonna, Pamela Anderson and other less known starlets. And to finally sum this up I am gonna add two pictures with this article so people can judge for themselves, if the myth still lifes on today.
So, hail to the dead blondes, maybe where they have gone too, the saying still goes on: Blondes have more fun.
Bye for now.
Gilli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.2.2007 | 22:42
Andrés Andar Bíllinn/Donald Ducks Car
Hilsen:
Aldrei hefði maður trúað því, en í dag virðist allt vera hægt. Bíð samt spenntur eftir tímavélinni, sem getur flutt mann annaðhvort fram eða tilbaka í tímanum.
Nú hafa þeir hjá Daihatsu hannað fyrsta Andrésar Andar bílinn, eða Daihatsu Copen, sem verður að segjast eins og er alveg ótrúlega líkur Andrésar Andar bílnum í teiknimyndasögunum. Bíllinn vegur aðeins 850 kg, er með 1.3 lítra mótor og undir húddinu leynast 85 hestöfl. Bíllinn kemst ekki hrðar en 140 km á klst og aðeins er pláss fyrir tvö. Hægt er að setja upp þak á hann, og er það aukabúnaður. Kjörinn bíll fyrir akstur í Andabæ, ef hann fyrirfinnst ekki þegar, nú eða í Latabæ hans Magnúsar. Var reyndar að horfa í morgun á dönsku útgáfuna af Latabæ, og satt að segja fínnst mér íslenska útgáfan betri, enda snilld Stefáns með eindæmum þegar hann túlkar Glanna Glæp. En, afsakið, aftur að Andrésar Andar bílnum. Bíll þessi hefur verið seldur lengi vel á Asíumörkuðum, en nú hafa framleiðendur hans ákveðið að höfða til norskra kaupenda í apríl n.k. Danskir verða hinsvegar að gera sér að góðu að bregða sér til Noregs og kíkja á gripinn.
Svona í lokin, því í fjandanum datt Guð ekki í hug að setja franskan rennilás á afturendann á manni, miklu þægilegra, en að láta rífa af sér heilu sáraumbúðirnar. Nú eða heilbrigðisstéttin, er ekki bara hægt að græða einn Velox rennilás á mann, þegar grípa þarf til að smella á mann umbúðir? Bara fyrir þá forvitnu, þá á ég eftir að taka pillurnar fyrir nóttina.
Hilsen
Hi from gilly:
Well I thought I had seen everything, but as it seems there is a lot more than that to it. Especially when you are surfing the internet, late at night. I came across this rather straight to the fact, Donalds Ducks car. This is a car made by Daihatsu, and has been sold for a while in the Asaian Markets, but now they are marketing it for Norway, of all countires, I would think Denmark would be more prospectibable, but maybe they are thinking about all the oilmoney, that hasnt yet been spent. In april the car will be presented, for those interested. The main features of the car, is that it weighs around 850 kg, with a 1.3 liter motor, the maximum speed is 140km per hour, and it has seats for only two persons. You can add a hardtop to it, which I think would be advisable, a little bit colder in Norway than lets say Malaysia. Maybe a good car for Santiago?
More later
Bye from Gilli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.2.2007 | 12:46
VertuGlaður/BeHappy
Frábær fyrirsögn, þegar maður liggur á sjúkrabeðinu. Var reyndar að koma heim eftir skoðun á spítalanum, og að samkvæmt því á ég framundan gæfulegt líf, án sáraumbúða og frekari aðgerða. Hafið ekki áhyggjur, ég er búinn að taka verkjatöflurnar, svo ég er ekkert að steypa neina vitleysu. Enginn veit þó sína framtíð fyrr en talið er upp úr kössunum, gott mottó, kannski stjórnmálaflokkarnir geti notað þetta. En vitið þið eitt, versti sársaukinn er þegar hjúkkurnar rífa af sáraumbúðirnar, sumar rífa þær af stig fyrir stig, á meðan aðrar, bara láta vaða og rífa þær af. Hinn sársaukinn gleymist eiginlega á meðan maður er að jafna sig eftir sáraumbúðaafrifuna. Manni líður eins og tréi í Amazon sem er rífið upp með rótum, þarf maður að segja meira? Enda fer þeim fækkandi, "trjánum" á æðri bakhluta mínum.
Nú fyrirsögnin vísar til þess, að í gær þegar ég var að flakka um alheimsins netsíður, fer að vísu ekki langt, á dr.dk. og svo einhverja linka, að ég dett inn á músíksíðu dr. dk, þar sem reyndar er fjallað um útgefna plötu Hafdísar Huldar, sem var á sínum tíma í GusGus, að inn á milli leynist danskur gullmoli, blandaður árhúsareggae rótum. Um er að ræða danska hljómsveit sem hefur tekið miklu ástfóstri við reggaetónlistina, ekki ósvipað og hinir íslensku Hjálmar, sem því miður eru hættir. Vinsælasta lagið hjá þeim er Kærleikssöngurinn, að mig minnir, Kærlekssangen held ég að það heiti, þetta lag er vinsælasta lagið eftir að þetta band, sem fyrirgefið, heitir BLIGLAD, eða VertuGlaður, og verður að segjast eins og er er skemmtilegt band á að hlusta. Heimasíðan þeirra er ansi flott, www.bliglad.dk, þarf eiginlega að koma henni á framfæri í kennslustund hjá Lillian, þar sem við erum að ræða um skilaboð heimasíðna og útlit þeirra. Endilega kíkjið á þessa síðu og þið getið einnig farið inn á myspace.com/bliglad og hlustað þar á þetta vinsæla lag þeirra, ef ekki þá á dr.dk, undir linknum musik. Annars er þetta band sem fyrr segir frá 'Arósum og hefur verið að gera góða hluti að undanförnu.
Nú jæja, nóg komið í dag, "tertubotninn" orðinn lúinn.
Hilsen
Hey from Gilli:
Just came home from the hospital. I dont know which pain is better, when they rip of the bandages very slowly or abruptly, because after that I have forgotten the main pain. I kinda feel like a tree in the Amazon, which has been ripped up with roots and everything. But it looks that I am recovering very well, and the doctor decided to have a nurse come every day to change the bandages. You can imagine how that will feel, for the next 3 weeks or so. I think I need to buy a cushion like the old people use, when sitting down.
The reason for this headline is that of course I am not looking forward to have the bandages ripped of every day, no it has to do with a dansih band called BEHAPPY, or in danish BLIGLAD. It is a band from Arhus here in Denmark, and the band has a special interest in music from Jamaica. And thos who know me, know that I like music from Jamaica, so when I heard this music, I fell for it. Those interested can go to their site, www.bliglad.dk, or go to myspace.com/bliglad and listen to their music, if you like reggae music.
Well, the kollegiiu is getting alive again, and now on my level we have a even figure here, 6 girls and 6 guys, and that only means that the kitchen will look much better. the majority of these girls are danish, one of the is polish. And there has been a increase in Polish students here, they are around 10 now, so we have a active society again. So life is getting back to normal here, and the "annoyance" who trashed up the kitchen have moved to the 3rd floor, so hopefully we will have a better kitchen again.
Well, getting tired, so I have to leave now.
Hilsen to, Ewa, Adrienn, Martina, Lene, Anja, Peter, and all those that read my blogs.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2007 | 12:27
Sjúkrabloggið/Today´s diary
Hilsen:
Vaknaði, afslappaðri í dag, en samt með verki. Fékk upphringingu frá spítalanum, um að mæta í skoðun á morgun. Kveikti á sjónvarpinu og datt inn í áhorf á einhvern kerlingarþátt, Rachael Ray, sem er svona hliðstæða við Oprah Winfrey. Horfði á þetta með öðru auganu og fór síðan að lesa í business bók um hvernig hliðstæð fyrirtæki á markaði eins og Apple og Dell, FedEx og UPS, hvernig þau pluma sig á markaði og einnig um hvernig kúlturinn er innandyra hjá þessum fyrirtækjum hvað varðar ákvarðanatöku og framkvæmdir. Merkilegt að lesa um það að einn af stofnendum Apple, Steve Jobs var þröngvað úr starfi af starfsmönnum og yfirmönnum á sínum tíma, þar sem hann þótti of einráður og tók mark á hvað starfsmenn höðfu fram að leggja, heldur einblíndi hann um of á sínar eigin hugmyndir án tillits til þess hvort þær væru framkvæmanlegar. Svo fór að hann kom aftur til starfa hjá Apple, og sú saga er sýnileg í dag með tilkomu IPOD og byltingarkenndrar hönnunar á tölvum og fleiru frá Macintosh. Hvað varðar stjórnunarþáttinn hjá Dell, þá lagði stjórnandi þess og aðaleigandi, Michael Dell meira upp úr því að hlusta á starfsmenn sína, mynda framkvæmdateymi og gera verkstjórana ábyrga fyrir útkomu hvers teymis hvað varðaði framkvæmdir og hugmyndir. Þannig náði hann fram meiri virkni í fyrirtækinu, og forðaðist það að vera um of einráður, en fylgdist þess í stað með úr fjarlægð.
Undanfarið höfum við verið að lesa um í Marketing um hvernig fyrirtæki á markaði, markaðssetja sig, og um leið öðlast sterkan markaðsgrundvöll, Jafnframt hvernig þessi fyrirtæki skapa "auðlindir" sem skila sér út í umhverfið. Þannig að þegar ég horfði með öðru auganu á þennan þátt Rachael Ray og stuttu seinna þátt með Oprah Winfrey, sem er orðin valdamikil í bandarrísku fjölmiðlalífi, þá kom upp í hugann hvað við höfum verið að ræða um í skólanum. Oprah Winfrey er orðin meira en blökkukona sem situr og ræðir af einlægni og skilningi við áhorfendur sína. Hún er orðin sjálfstætt vörumerki, sem skilar milljarða arði, með bókum, þáttum, fyrirtæki hennar Harpo er atvinnurekandi fjölda manna sem starfa í tengslum við þáttagerð, bókarútgáfu, ráðgjöf, framleiðslu sjálfstæðra þátta og um leið skilar þetta margfeldni út í atvinnulífið, hvað varðar markaðssetningu og framleiðslu. Um leið er hún að skila út í samfélagið vitund um mál sem margir kjósa að láta kyrrt liggja. Hún tekur fyrir viðkvæm málefni, jafnframt því sem hún reynir að efla sjálfsvitund bæði kvenna og manna. Þannig að samhliða þessu er hún gangandi dæmi um input og output, input er það sem sett er í þáttagerðina, og output er það sem skilar sér í framleiðslunni, eins og bókum og þáttum. Um leið er þáttur með Rachael Ray, samkeppnisþáttur þar sem reynt er að fanga athygli þeirra sem horfa ekki á Oprah, með matargerð og viðtal við að því er virðist lítt þekkta aðila. Að því er manni virðist á þessi Rachael Ray langt í land að sækja hvað varðar vinsældir Oprah, enda Oprah orðin nánast besti heimilisvinur fjölmargra kvenna, ekki bara í Bandarríkjunum, heldur um víða veröld. Hún er orðin globaliseruð, enda vita flestar konur þessa heims hver hún er. Minnir mig á þegar 'Omar Ragnarsson hitta Gísla í Uppsölum, einbúann, og spurði hann hvort hann vissi hver hann væri. Nei, Gísli þekkti ekki 'Omar, enda hafði hann ekki sjónvarp og kunni lítil skil á þessum manni með ullarsokk í bandi. Spáið í það ef við hefðum ekki sjónvarp, þá myndum við lítið þekkja til Vina, American Idol, Discovery Channel, Spaugstofunnar og svo videre.
jamm, "tertubotninn" það er rassinn á mér, er farinn að láta vita af sér.
Hilsen
Gilli
Hi from Gilly:
Feeling a little bit better today. Woke up, watched some television, and then I turned my attention to reading some business book which we had last semester. Got kinda inmersed into it, reading about the differences between the computer companies, Apple and Dell. The book was describing about the organizational structure and approach of these companies, and telling how their founders, Steve Jobs, and Michael Dell had different management tactics.
After I while I started watching some sitcom, called Racheal Ray, and after a while it dawned on me that a sitcom like Rachael Ray in comparison with Oprah Winfrey, is like a classical school example about branding and marketing. Also in featuring about input and output of these programs, because while Oprah Winfrey is today a branded trademark, with books, programs and other media related things, a program like Rachaels Ray has a tough battle to fight a dynasty like Oprahs which is reigning in every houshold in America and globally. I think I can say that not many females dont know who Oprah Winfrey is today. This we can thank the influence of television, if we didnt have television, we wouldnt be much aware of many things ongoing in both news and entertainment, maybe a better choice, or not. Consider if we didnt have internet, we would be writing long and boring letters, that nobody would last to read in the final run. Think about it.
Well gotta quit now, need to take my medication. Maybe thats why I have put these strange thoughts on my blog, who knows?
Hilsen
From the kitchen party, Adrienn, Martina and Lene.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
Bloggvinir
Myndaalbúm
Af mbl.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 63413
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar