Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007
31.3.2007 | 15:48
Leiðrétting/Correction
Hilsen:
Svona í hita augnabliksins gleymdi ég að fara með rétt með stærðina á nýuppfærðri tölvunni minni. Hún er náttúrulega 1.6 Ghz og svo um daginn var ég að tala um hitastig frá 10-15 á Fahrenheit, en að sjálfsögðu átti það að vera á Celsíus. Báðar villurnar pínlegar, en ekkert nýtt þegar menn blogga í hita augnabliksins.
Hi from Gilly:
In the heat of the moment I forgot to mention that the new updated computer is 1.6 GHz, but mz and the other day in one of my blogs I was talking about temeperature in teh Fahrenheit, of course it was supposed to be in Celsius. Very awkward but these things happen in the spur of the moment while writing the blog.
Bye Gilly
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2007 | 15:12
BRRRR/BRRRRRRR
Hilsen í langan tíma:
Jæja, hvað haldið þið? 'I fyrsta lagi er ég kominn í páskafrí, í öðru lagi þá á eg von á nánast nýlegum ísskáp eftir helgi frá FamilieKanalen, og í þriðja lagi, já haldið ykkur, tölvan mín hefur stökkbreyst frá gamalmenni án göngugrindar, í Ferrari. Því get ég þakkað enn á ný hjálparhellunni minni, Olaf, sem keypti sér nýja tölvu í gær fyrir bæturnar sínar, og gaf mér tölvuna sína, sem er 1.6 Mhz og 120GB harðdiskur. Þannig að núna þarf maður ekki að bíða, og naga annan umgang af neglunum á sér á meðan tölvan keyrir upp. Og svona til að virkilega "make my day" þá get ég loks spilað dvd diska í tölvunni og horft á einhverjar almennilegar myndir. Og svo kemur rúsínan í pylsuendanum, veðrið hérna er alveg frábært, sólríkt og heitt. Þannig að það er auka mmmmmmmmm við brrrrrrrrrrrrrrrrr. Enda er maður sko búinn að vera á keyrslu, kláruðum ég og Olaf 15 síðna markaðgreiningarskýrslu um Reebok, og svo kláraði ég gagnagrunn fyrir ímyndað bókasafn. Þannig að nú er maður sáttur við lífið og tilveruna, enn á ný, enda alltaf gaman þegar vel gengur, ekki satt? Þó verður þetta ekki alger endalaus sæla, enda þarf maður að hnýta nokkra lausa enda, varðandi verkefni sem hafa verið látin reka á reiðanum, fer ekkert frekar út í það.
Svo hefur manni boðist tvenn atvinnutækifæri, annarsvegar að vinna að því að filma, klippa og stjórna upptökum á revíu sem hleypt verður af stokkunum í ágúst, og svo hinsvegar að endurhanna vefsíðu fyrir danskt fyrirtæki. Bæði þessi atvinnutækifæri koma í gegnum skólann, þannig að maður er svona nett spenntur að sjá hvernig þetta fer, enda fær maður svör í næstu viku.
Nú og svo er það FamilieKanalen, Lasse er í útrásarhug og vill fara að nýta hæfileika okkar, varðandi sjálfstæða þáttagerð, eða allavegana hugmyndir varðandi slíkt. Bara gott og vel, enda höfum við Valon, sem er danskur þriðju kynslóðs Júgósalvi rætt um kannski að vinna saman að vinnslu og frágangi á slíku efni. Þar að auki erum við sem unnum að smá skólaverkefni varðandi umferðaröryggi að setja myndina inn á youtube.com. Þannig að maður getur ekki annað en verið bjartsýnn hvað varðar áframhald hér.
Var reyndar að hugsa um daginn, hvar væri ég nú ef ég hefði ekki tekið stóra stökkið? Væri ég í einhverju andlausri vinnu, að láta allt reka á reiðanum, bara sáttur við að koma heim, borða horfa á sjónvarp og svo vakna í vinnu næsta morgun? 'I sjálfu sér ekkert að því, það gera þetta allir í dag að sjálfsögðu, en verður lífið ekki að hafa einhvern tilgang til þess að maður sé sáttur við lífð og sjálfan sig? Auðvitað verður þetta svo hlutskipti mitt þegar námi lýkur, en miðað við mitt líf, þá er þetta tímabil sem ég hefði ekki kosið að fara á mis við. Basta
Jæja elskurnar, tími til kominn að taka til, allt í rusli að sjálfsögðu hérna eftir atgang dagsins í dag.
Gilli
Hi from Gilly:
A revolution happened today. Those who remember, that I have been talking about my slow computer at home, which at some point has kinda reflected like 50 senior citizens without strollers were living inside it, took a gigantic leap today, when I hopped from 80GB up to 120 and from 737 mhz up to 1.6 mhz. That is like stepping from a bicycle into a Ferrari. And if this is not to please me then on Monday I am getting a refrigerator in my room. So life is smiling, and to add to it, I am looking at two job propositions, one regarding filming and editing a comedy show in august, and the other one is redesigning a present website for a danish company. Both these assignments come through the school, and I am awaiting answers in the next week or so.
On friday me and my group partner, Olaf finished a 15 page market analysis on Reebok, and then I finished a imaginary database concerning a library. So now It is just relaxation and then hitting the books and the programs to make up for some assignments that still need to be turned in after easter.
Also there are plans at the FamilieKanalen of starting some independent filmmaking, so there are many corners to look into at the moment. This all comes in one strike, so it kinda makes you feel that life is smiling and looking bright at the moment, which is good and positive.
I was reflecting where I would be now if I hadnt decided to move to Denmark. Maybe in a one end job, being satisfied just working, eating and watching tv and then waking up for next days work. We all will have to do that sooner or later. I did it for many years, and now I think I am reaping my award for taking this step, because it just makes you feel good about yourself when you have taken a right decision in life. So I am just gonna enjoy my school years, because I have earned it.
So my dears, until later.
Bye from Gilly
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2007 | 17:12
'Islendingurinn/Icelander
Jæja, maður getur aðeins dregið andann léttara, eftir að hafa klárað þemaverkefni sem hófst í gær og lauk í dag. "Smá" verkefni í html, sem menn ýmist svitnuðu yfir eða kláruðu á einfaldan hátt. Við Olaf börðum saman html og gerðum bara vel. Erum orðnir ansi sjóaðir að vinna saman, en stundum á Olaf það til að ergja mig, enda gamall múrsteinssmiður, eða hvað við getum kallað hann, enda lagt margan múrsteininn í gegnum ævina. Hann samþykkir aldrei neina hönnun, nema að standa upp frá tölvunni, ganga nokkur skref afturábak og sjá hvort þetta sé allt miðjusett og fínt og "flútti" við tekstann, jafnvel þó að hægt sé að miðjusetja þetta í tölvunni. En þrár er hann og heldur fast í sitt, og svo ef tölvan virkar ekki, þá fær músin svo sannarlega að kenna á því.
Og svo er Olaf frekar lúmskur, er búinn að hlaða niður nokkrum góðum prógrömmum og ýsmu öðru smálegu úr tölvunni til að nota heima í tölvunni sinni. Þar að auki er hann lúnkinn og veit margt sem getur komið sér vel seinna. Var að segja honum frá skólatösku sem ég var að kaupa fyrir fartölvu og fleira, og þegar hann heyrði verðið, sem var reyndar ekki mikið, þá sagðist hann geta keypt samskonar tösku hjá öðru fyrirtæki fyrir helmingi lægra verð. Alltaf gaman að heyra svona, eftir að maður hefur fjárfest í einhverju. Keypti reyndar um daginn einhverja hræbillega tösku í Tiger, sem rétt tekur við fartölvunni minni, tveimur bókum, og ekki meiru. Þegar ég ætlaði að opna hana í tíma, þá stóð lásinn á sér, og jafnvel þó ég væri búinn að slá inn kóðann, ekkert gekk. Að lokum neyddist ég til að rífa festinguna með lásnum upp. Þýddi ekki annað ef ég ætlaði að nota fartölvuna og námsbækurnar. Það er af þeim orsökum sem ég hef fjárfest í almennilegri tösku.
Nú, það er að bera í bakkafullan lækinn að tala um góða veðrið sem ríkir hérna. Enda gekk égheim léttklæddur eftir smá vinnu á vegum tövluversins í öðrum skóla. Fékk samt á tilfininguna að venjulegru dani þætti ég full frjálslegur, enda ennþá kappklæddir, enda skil ég þá vel, þegar allt síðasta sumar að hitastigið fór varla niður fyrir 30 stigin. Maður vonar að það verði allavegana gott sumar, miðað við veðrið sem spáð er næstu dagana.
Og svona til að tala um hið einstæða bankakerfi hérna, þá brá ég mér í Nettó, til að kaupa smáræði, á versta tíma, enda venjulegur dani hættur klukkan 3 að vinna. Þegar kom að mér í röðinni, þá tók ég upp nýja kortið mitt frá bankanum, renndi því gegnum kortamaskínuna og fékk neitun. Sagði kassadömunni á minni ylhýru ísdönsku að hér væri um að ræða nýtt kort. Hún bað mig um að prufa það aftur og enn fékk ég neitun. Þá leit hún á kortið og sagði að Nettó tæki ekki við slíkum kortum, þar sem þetta væri debetkort, en ekki Dankort, sem hægt er að nota allsstaðar. Röðin lengdist æ meir, og ef þessi sena hefði átt sér stað heima hefði eflaust einhver verið farinn að ókyrrast og talandi um að fjölga starfsfólki eða eitthvað slíkt. 'Eg varð því frá að hverfa, enda mun ég svo sannarlega tala yfir hausamótunum á þjónustufulltrúanum mínum, varðandi þessa pínlega aðstöðu að nota þetta kort. Þjónustufulltrúinn hafði reyndar sagt að ég gæti notað kortið allstaðar, en það virðist eitthvað vera takmarkað.
Svona er nú Danmörk í dag.
Hilsen
Gilli
Hi from Gilly:
Well, finally a break from school. It has been hectic, to say the least, and today we finished a theme at school, so now I am taking a breather, since I have been preparing myself for this theme for the last days or so.
The weather here is quite nice, ranging from 10-15 degrees on the Fahrenheit scale. And it is supposed to get better over the weekend. And I think that this is our last week at school before easter, so it will be nice to get some relaxation and rest. As usual easter will pass quickly, so it is wise to use all the time available to read and relax.
I wadoing some work today at the it-center, and I had to do some work at another school. Afterwards I walked home, and I kinda sensed that some people thought that I had recently been released from a mental home, only in my t-shirt and black pants. Why do I think that, is because the danes I meet were in thick coats and had hats and looked like they were walking in 30 degrees frost. I think this is due to that last summer they had a record heat off 30 degrees every other day, s when they see me, they probably think that I am homeless or something else.
But I am accustomed to a weather like this from Iceland, and we seldom have record breaking temperatures like the danes at home. So I am just gonna enjoy while I can. Wouldn´t you?
Bye from Gilly
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2007 | 20:59
Vorið er komið/Spring is here
Jæja það er svo sannarlega vorfiðringur í veðrinu þessa dagana. Næstu dagar gera ráð fyrir 10-15 stiga hita og hægum vindi. Dagurinn í dag var einn af upphafsdögum þessarar vorblíðu sem á að endast fram í næstu. Var að vinna upp í skóla í dag ásamt Olaf skólabróður mínum. Þegar út var komið seinni hluta dags greip mann löngun til að eyða síðustu klukkustundunum utandyra. Fékk mér gönguferð um nálægt nágrenni smellti myndum í leiðinni.
'I gær var haldið ansi skemmtilegt ball í kjallaranum á kollegiium, þemað var strandfatapartý og mætti margur maðurinn í hawai skyrtunni og stuttbuxunum. Kvenfólkið allavegana var eitthvað fastheldnarar á að mæta kannski ekki alveg létttklætt, en mættu þó sumarklæddar margar hverjar. Yfir partýinu ríkit skemmtilegur andi og voru spilaðir gamlir smellir eins og macarena og fleira. Og svo innbyrtu menn og konur drykki og aðrar veigar. Ekki seinna vænna að halda smá strandfatapartý enda verður tíminn færður fram um klukkustund í nótt, enda kominn sumartími samkvæmt evrópsku tímatali. Þannig að nú vaknar maður fyrr á morgnana, enda sólin farin að skína þetta 7 á morgnana og dagurinn farinn að lengja til klukkan 7 á kvöldin.
Af öðrum málefnum er það að frétta að smátt og smátt er að síast inn í mig erfiðu aðstæður vinar míns. Hringdi í hann í gær og mér heyrðist á honum að framundan eru erfiðir tímar. Maður finnur til með honum og fjölskyldunni allri, enda höfum við verið samferða í gegnum lífið í hartnær 30 ár.
Hef þetta stutt að sinni, enda nóg að gera varðandi lærdóm. Eigið notalega helgi vinir mínir.
Kv
Gilli
Hi from Gilly:
Well spring is here to stay. The weather today was fantastic, around 15 degrees, warm and less windy. The schedule for the next days plans for sunny days with the average heat ranging from 10-15 degrees, not much but nice though. Last night there was a dress party in the cellar at the kollegiium where people showed up in beach clothes, and shorts. They guys were more apparent than the girls who just dressed casually. Everybody had a good time, and even though some are not feeling well today, maybe because when you blend too many sorts togetherm your head feels like concrete the day after.
Even though, it is was about time to celebrate, since tonight we are moving the time ahead of 1 hour, so the mornings are getting shorter and the days longer. About time to welcome spring and then summer.
Well, hope you all have a nice weekend. I will.
Bye Gilly
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2007 | 12:55
Vinur minn
Hilsen:
Jæja loksins sáu þeir aumir á mér hjá 3G símfyrirtækinu hérna og opnuðu samband við umheiminn. Hafa eflaust ekki haft neitt að gera og ákveðið að opna svona sér til dægrastyttingar nokkur símanúmer. Fallegt af þeim. Hrigndi í náinn vin minn, og komst að því að líf hans hefur tekið miklum stakkaskiptum. Vil ekki fara nánar út í þau efnisatriði, en vil bara segja að stundum finnst manni sem óréttlætinu sé ójafnt deilt. Þessi náinn vinur minn hefur ætíð verið boðinn og búinn til að hjálpa manni og öðrum, annaðhvort með skilningi eða laumað að manni einhverju smálegu. Oft hefur maður haft á orði við hann að maður muni borga honum seinna tilbaka, en hann hefur aldrei viljað heyra á það minnst. Hann hefur verið duglegur og komið sér vel fyrir í sínu lífi, eignast mannvænleg börn og góðan maka. Nú bregður svo við að yfir heimilinu geisa erfiðir tímar, þar sem vinur minn þarf að endurmeta líf sitt og sinna nánustu á nýjan leik. Afsakið að ég fari ekki nánar út í málið, en ég geri þetta af trausti við vin minn.
Það sem ég sagt vildi hafa, er það að þessi vinur minn hefur reynst mér ætíð svo vel og öllum þeim sem hafa leitað til hans, að hann á inni hjá mér núna og svo lengi sem ég lifi, að ég muni standa við hlið hans í hans raunum hvað sem á bjátar. Hann á það svo sannarlega skilið. Hann fer ekki í manngreiningarálit og hefur aldrei sett verðmiða á nokkurn mann. Hann hefur haft það að leiðarljósi að lifa sáttur við sitt og sína samferðarmenn, og aldrei hallmælt nokkrum manni. Þegar atburðir sem slíkir henda mann eins og hann, þá spyr maður, af hverju hann? Af hverju ekki ég, eða einhver annar?
Erfitt um svör. Kannski segja menn, svona er lífið, en stundum finnst maður lífið óréttlátt. Mér finnst það núna, eftir að hafa talað við vin minn.
En ég mun hugsa til hans og fjölskyldunnar og vona að úr rætist. Annað er ekki hægt.
Hilsen
Gilli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.3.2007 | 14:13
Ryksugan/Vacuum cleaner
Gleymdi að setja inn mynd af ryksugunni forlátu. Er smá rispuð en að öðru leyti starfhæf.
Hi:
Forgot to put a picture of the vacuum cleaner. It has some scratches but otherwise functional.
Bye
Gilly
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2007 | 19:58
Var þetta ljóska?/Was it a blond?
Jæja, það bar vel í veiði í dag. Var að vinna hjá FamilieKanalen við að klippa. Lasse spurði mig hvort ég gæti ekki hjálpað sér að henda út leifarnar af fyrrverandi eldhúsi, enda búinn að setja upp nýja eldhúsinnréttingu. Þegar út var komið sáum við stóran kassa hjá ruslatunnunum og stuttu seinna kom húsvörðurinn og fór að athuga hvað væri í kassanum. Kassinn innihélt forláta ryksugu af nýrri gerðinni. Húsvörðurinn sagði að þetta væri ekki fyrsta skiptið sem hann rækist á svona, þar sem oft kæmi fyrir að leigjendurnir hentu út ryksugum vegna þess að þeir föttuðu ekki að skipta um nýjan poka í þeim. Hann athugaði með þessa, og viti menn, pokinn var ekki settur á og við nánari athugun kom í ljós að þetta var ekki rétt stærð af ryksugupoka fyrir ryksugun Og hvað gerir maður þá? Nú maður kaupir bara aðra og hendir hinni. Ekki skal fullyrt um fyrrum eiganda ryksugunnar, en óljóst læddist sú grunsemd að manni að hárlitur og kyn hefði vafalaust eitthvað með þetta að gera. Húsvörðurinn leit á okkur Lassie, og eftir að hafa athugað hvot hún ryki ekki í gang, sem og hún gerði og virtist í fullkomnu lagi þá leit hann á okkur til skiptis. Lassie sagðist ekki hafa þörf fyrir hana og því féll hún í mitt eignarhald. Þannig að nú á ég þessa fínu ryksugu, enda ekki þörf á, rykið út um allt eftir viku
'I dag var einn af þessum fínu sumardögum. 'Eg var eitthvað slappur í morgun, var heima en braggaðist allur og fór á stjá seinni part dags. Og sem fyrr segir var ég að vinna hjá Lasse í dag, og lenti í að taka upp viðtal ásamt Lasse við borgarstjóra Esbjerg. Hinn vænsti maður og skemmtilegur í viðmóti.
þannig að nú er maður kominn heim eftir góðan dag og sestur við tölvuna sem er með hressari móti enn sem komið er og nú er framundan næturvinna við heimasíðugerð og sitthvað fleira.
Vona að morgundagurinn verði jafngóður og dagurinn í dag.
Hi from Gilly:
Today was my lucky day. I was working at the FamilieKanal today, helping Lassie to throw out the leftovers of the kitchen. When we were carrying out the leftovers we noticed a big box, which contents was a vacuum cleaner. Shortly afterwards the janitor showed up to check on the material we were throwing out. He noticed the box with the vacuum cleaner and started telling us stories about the tenants living in the house, where they were sometimes throwing out nearly new vacuum cleaners, just because the bags were stuffed with dust. So instead of throwing out the bags and putting new one´s in, they threw the vacuum cleaners out. So he inspected this one, only to find out that the bag was not put properly out and the dust lying around in the vacuum cleaner. And when he examined the bag he noticed that the bag was too small for this vacuum cleaner, and thus the owner had thrown out this brand new vacuum cleaner. After testing it the janitor asked us if we needed a new vacuum cleaner. Lassie already had one, and so I got a new vacuum cleaner without paying for it.
And I surely have use for it, cleaning out the dust in my room.
So this was a pleasant day today.
Bye
Gilly
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2007 | 18:16
'A lífi/Alive
Kæru vinir. 'Eg er á lífi, tölvan afturámóti er ekkert skárri, sló af grafíkinni, þannig að það fer ekki eins mikil orka í að keyra hana upp. Það er rosalega freistandi að slá til og kaupa sér eina nýja, en eins og er verður sá draumur að bíða betri tíma, fjárhagslega allavegana. En þegar maður hefur aðgengi að Micha og Olaf, þá gerast hlutirnir, hægt og bítandi. Það er kominn góður kjarni af fólki hérna, sem fyrr segir Pólverjar í meirihluta, Danir og svo reka lestina önnur þjóðarbrot eins og Spánverjar, Frakkar, vinir mínir, Janko og Marina frá Slóveníu, sem eru hið yndislegasta par. Þar að auki hafa áherslurnar breyst varðandi "helgardjammið" hérna. Nú er vinsælt á laugardögum að spila póker í eldhúsinu á fyrstu hæð, í svokölluðum Texas Hold´em, þar sem menn eru að vinna allt upp að 130 dkr. Engar stór upphæðir, enda fátækir námsmenn, en duga fyrir tveimur kössum af bjór allavegana. Svo eru kominn stór hópur sem spilar billjard upp í skóla alveg fram til 4-5 á næturnar. Fjórða hæðin er komin með ímynd á sig sem vöggustofa, enda heyrist orðið minna af hávaða þaðan á föstudögum og laugardögum.
Svona er Esbjerg í dag. Og til að hneykslast aðeins, þá var ég að borga fallna símreikninga á föstudaginn var, og þegar ég sá að enn var ekki búið að opna símann, þá hringdi ég úr símanum hans Olaf í símafyrirtækið til að athuga hverju sætti. Og hvað haldið þið að svarið hafi verið? Jú það tekur 5 virka daga, talið frá og með deginum í dag að opna símann aftur. 'Eg spyr bara, hvað er staffið að gera, þrífa símalínur eða hvað? Þetta er alveg með ólíkindum, eins og ég hef eflaust minnst á að ef maður ætlar að borga reikninga í öðrum banka en sínum viðskiptabanka, þá er það ekki hægt nema að hafa reikning í viðkomandi banka. Veit ekki af hverju ég hélt að Danir hefðu allt sitt á hreinu, en eftir þessar uppákomur, þá er maður farinn að sjá ýmislegt gott við "kerfið" heima, þó manni langi ekkert heim eins og er. Það er aðeins tvennt sem ég sakna frá 'Islandi, pepsi max og útvaldur vinahópur, þið vitið það sem lesið þessa pistla, að ég sakna ykkar. Auðvitað hefur maður eignast góða kunningja hérna, en innst inni saknar maður ákveðinna vina, sem maður þekkir betur eftir langan tíma. Er það ekki alltaf svoleiðis?
Jæja, væmnin farin að ná tökum á manni. En annars elskurnar, tími kominn á námið.
Hilsen
Gilli
Hi from gilly:
Well, for those wondering when my funeral will be, then I am sorry, I am still alive. On the other hand my computer isn´t working very quick as it is, so I have limited the graphic display so it will work quicker. I had plans of working on the computer this weekend, and managed to do some work, but it seems that we will have to do more work than expected. I am lucky to have the assistance of Micha and Olaf, my friends, who are more than willing to help out. There is a good group of people here, and the moral of the kollegiium has changed. Now the fourth floor resembles more a old peoples home, quite over the weekends, while on the first floor, the kitchen there is popular on saturdays when they are playing poker. And at the school, Business Akademi Vest they are playing pool until 5 in the mornings. There are plans for a costume party on the upcoming friday, so maybe there will be some photopportunities.
Otherwise I am working on the redesign of a website, and also doing work in setting up databases. It seems that this semester is gonna be tougher than expected.
I am still in awe and amazement of the danish bank system here concerning paying bills. I had two phone bills that I hadnt managed to pay while sick after the operation. I payed them on friday last week, and when my phone wasnt yet operative I phoned the company and they replied that the rule was that it would take 5 working days to open the phone. So what the f..ck are they doing for 5 days, cleaning the windows or something at the phone company? Unbelievable system. But nothing new, I am always learning more about this tightly woven system of laws and regulations.
So I will just communicate with skype and msn until my phone gets activated again.
Well my dear friends, work calls, have to keep on working on the redesign of the website.
Until later.
Gilly
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2007 | 19:23
'I lok vikunnar/By the end of the week
Jæja, þá er vikan liðin. Verð að segja eins og er að maður er hálfpartinn feginn að það sé kominn föstudagur. Undanfarnir dagar hafa verið sólríkir, en meira um gluggaveður þegar út er komið. Vikan hefur verið hefðbundin, vinna í tölvuverinu, og svo inn á milli klippivinna hjá Lasse. Hvort tveggja gengið bara vel, og helgin verður notuð, vonandi, í það að uppfæra tölvuna, enda hefur tölvan mín smátt og smátt farið að taka á sig ímynd gamalmennis sem fer hægt yfir án göngugrindarinnar. Enda er hún ansi lengi að taka við sér þessa dagana, blessunin. Maður finnur fyrir því hversu háður maður er orðinn þessu "verkfæri", sem maður notar til vinnu og jafnframt samskipta, upplýsingaöflunar og svo almenn notkun. Ef þetta verkfæri hrynur, þá jafnast það á við "heimsenda" En allavegana, þá er kominn tími á allsherjar uppfærslu og hreinsun. Var svo heppinn að njóta aðstoðar Micha, sem er Pólverji og er að læra tölvufræði við skólann, og er ansi sleipur að finna út vanda varðandi tölvur. Eftir að hafa prófað hana var niðurstaðan þessi. Helv hann Bill Gates er náttúrulega algert séni að sjá til þess að þegar netþjónninn, IE5 ræður ekki við meira og öll gögn manns og fleira til eru geymd á netþjóninum, og sjálfur notar maður Mozilla, að þá getur maður lítið annað gert en sótt hjálp til Microsoft til að byrja upp á nýjan leik. Maður getur einfaldlega ekki bara hent út IE vegna þess að netþjónninn hægir vinnsluna. Því miður. Svona er lífið í Microsoft heiminum.
Annars hefur lítið markvert gerst undanfarna viku, athyglin hefur verið eitthvað takmörkuð, enda nóg að hugsa um. Er reyndar búinn að redda fjármálunum og nú er maður að leita logandi ljósi að vinnu í faginu. Kominn tími á það, enda maður smátt og smátt að afla sér góðrar þekkingar. Eitthvað virðist vera að rofa til í þeim efnum.
Helgin lofar ekki góðu veðurfarslega séð, spáð rigningu og skítaveðri og þegar heyrir maður það utandyra að það er farið að blása allhressilega. 'Agætt að nota helgina til að legga lokahönd á vefsíðuna sem maður er að endurhanna. Ætla ekki að gefa upp slóðina að þessarri vefsíðu fyrr en því er lokið.
En, best að ljúka þessu "kjaftæði" og hafa það náðugt í kvöld.
Hi from gilly:
Well finally the week is at its end. Thank god for Fridays. It is always so nice when fridays take over. This week has been traditional, working in the it-center, and then some editing work at the television station. In between my computer has decided to slow down in life, and take it easy loading up webpages. Why rush when the browser is from F..cking Bill Gates, and if you need to do something you have to rely on the drivers and everything from them to update and install again. So to prevent me from going back to the stone age, I am hopefully gonna use this weekend to work on my computer. It has been nervewracking not having a workable computer, considering the assignments awaiting to be worked on.
Well I have finally cleared out some bills so now I can "relax" and just focus on my education and also trying to find a job in my education and lately I have been applying for jobs and the have gotten positive feedback, so lets so how that goes.
It seems that this weekend is gonna be crappy with rain and some windy weather, so it is a good excuse to stay inside and work on webpages and other things that need to be done.
So I am gonna have a nice weekend and take some rest, I have earned it. Until later my friends.
Here are some pics from last weekend when the sun was shining and it felt like "summer".
Bye from Gilly
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2007 | 17:02
Þeir eru á leiðinni/They are coming
Hilsen:
Fyrir nokkrum áratugum síðan var gerð mynd sem hét Rússarnir koma og átti hún að endurspegla hræðslu manna við innrás Rússanna, þegar Kalda Stríðið var í hámarki og Rússagrýlan allsráðandi. Þetta var reyndar mjög fyndin mynd á sínum tíma, man ekki hverjir aðalleikararnir voru. Spurning hvort myndin verður nookurn tímann endurgerð.
'i dag lifum við í breyttum heimi, rússagrýlan og perestrojka eitthvað sem afkomendur okkar munu lesa um og spá í. Við afturámóti munum ef allt gengur eftir spá vísindamanna upplifa það að lifa með vélmennum, sem munu annast okkur á elliheimilum, framkvæma aðgerðir á okkur, og einnig þjóna okkur á heimilum okkar. Þetta munu vera vélmenni í fullri stærð, með lífrænt heilabú, sem eflaust styðst við heilasellum úr rottum. Það er talið að það þurfi í kringum 1000 sellur til að fljúga flughermi. Framtíðin býður einnig upp á það að nota lífrænt efni í tölvur framtíðarinnar, enda hluti af þróun sem þegar er hafin. Samhliða því sem við munum lifa í heimi með vélmennum þarf að setja lög og reglugerðir varðandi samskipti manna og vélmenna. Enda margar spurningar sem liggja uppi á borðinu, varðandi það hvernig hægt er að varðveita þær persónuupplýsingar sem vélmennin munu hafa um mennina. Og um leið hvernig hægt verður að koma í veg fyrir misnotkun.
Þegar eru uppi reglur varðandi samskipti vélmenna og manna, en þessar reglur koma úr bók Isaac Asimovs, Runaround frá 1942, en myndin I Robot með Will Smith byggði á þessarri bók og reglum þeim sem settar voru fram í bókinni:
Fyrsta regla: Vélmenni má aldrei skaða manneskju eða valda því að manneskja verði fyrir skaða.
Önnur regla: Vélmenni skal í einu og öllu hlýða manneskju, án þess að brjóta reglu 1.
Þriðja regla: Vélmenni má verja sig sjálft, svo lengi sem það brýtur ekki reglur 1 og 2.
Þegar hafa ríki eins og Bretland og Suður-Kórea ákveðið að setja lög um samskipti manna og vélmenna. Hvað varðar ríki eins og Suður-Kóreu, þá er þetta ekki neitt nýtt þar sem Suður-Kórea er eitt tæknivæddasta ríki jarðarkringlunnar, en að mati flestra muni það fljótt gerast innan næsta áratugs eða svo að vélmenni verði staðalbúnaður heimilanna. 'Arið 2020 verði flest heimili komin með vélmennaþjón, í kringum 2018 verði einföldustu aðgerðir á spítala framkvæmdar af vélmennum og stærstu þáttur vélmenna verði að sinna ellilífeyrisþegum. Miklu fjármagni er varið í að skapa vélmenni með vitsmunalega greind en enn sem komið er hafa þær rannsóknir litlu skilað. En framtíðin hvað varðar vélmenni er handan við hornið. Spurningin er hvort við munum lifa betra lífi með vélmenni sem nánast gerir allt fyrir okkur, og einnig hvort það muni skapast vélmennafíkn, ekki ósvipað net og tölvuleikjafíkninni sem öllu tröllríður þessa dagana. Það verður gaman að sjá.
Veit ekki hvort menn hafi sperrt eyrun varðandi eina þekktustu núlifandi persónu mannkynnssögunnar, persóna sem margir mundu annaðhvort vilja sjá aflífaða eða sett á stall sem tákngervingur fyrir afrek sín. En viðkomandi persóna afrekaði það á föstudaginn var að verða fimmtug, þrátt fyrir viðamikla leit að henni, eflaust ekki tengt fimmtugsafmælinu. Eru menn einhverju nær? Jú viðkomandi persóna heitir Osama Bin Laden, og hann varð fimmtugur á föstudaginn var, samkvæmt fréttamiðlum. Það var mönnum mikil til efs að hann hefði opið í hús í tilefni dagsins, og hvað þá að á gestalista hans væri að finna tvíeykið BushogBlair. En allavegana hvort sem hann er á lífi eður ei, þá er kallinn fimmtugur. Skyldi hann hafa sprengt nokkra sjálfsmorðssprengjur í tilefni dagsins? Hver veit?
Var ég búinn að minnast á skógana hérna? Að sjálfsögðu, endar eflaust með því að blogginu verður lokað vegna einhæfni. En í dag, sunnudag, var hið fínasta veður og ég ákvað eftir að hafa lesið nokkra kafla í business og gameplay að rölta niður á strönd. 'A hjóli er maður kominn innan við 10 mínútur en gangandi innan við hálftíma. 'A meðan ég rölti veitti ég því athygli að skyndilega hafði umferðin um skólasvæðið aukist til muna, enda skammt frá "laugardalsvöllur" Esbjergs og fyrsti stórleikurinn í fótbolta var í dag. Af þeim sökum voru allar hliðargötur smekkfullar af bílum, og á leiðinni mætti maður fullorðnum mönnum og drengjum með trefla og húfur í einkennislitum heimaliðsins. En þegar á ströndina var komið fékk maður sjávarloftið í æð og rölti um eins og flestir sem ekki eru þjakaðir af fótboltafári og naut útiverunnar. Eftirá ákvað ég að ganga aðra leið tilbaka, og rölti meðfram ströndinni í átt að hafnarsvæðinu og um tíma þegar ég rölti í gegnum eyðilega hafnarsvæðið fékk ég allt í einu þá tilfinningu að vera kominn til Grindavíkur, hef engar sérstakar taugar þangað, en hafnarsvæðið minnti mig einhvern veginn á það, yfirgefið og mannlaust. Og nú er maður kominn heim, sólin skín enn, hlýrra í dag en í gær og maður finnur að maður er nett þreyttur en endurnærður eftir gönguna. Nú tekur námsefnið við, enda hefur maður aðeins hummað það frameftir helginni, enda sunnudagar ágætir til að liggja yfir bókunum. Læt þetta nægja að sinni.
Hilsen
Hi from Gilly:
Today is a perfect day, went down to the beach, and while on the way, noticed that today is the start of the football season, and apparently I wasnt the only who noticed that, because the parking spaces and were scattered with cars, everywhere, even in the forest nearby the football stadium. But I just went straight to the beach, had a nice walk there, amongst other who were taking their dogs and kids for a stroll. A nice beach and worth the visit, mainly because of the statue that stands there.
When I came home I read about the future ahead of us. As we already know and have seen from various movies, we will soon enter the age when robots will be a part of our lifespan, in our homes as butlers, performing simple operations at the hospitals, and also looking after old people in nursery homes. This is not something that will happen after 50 years or more, in a shorter span, where we are talking about 2020 that robots will be a part of our everyday life cycle. Already nations like Britain and South Korea are pondering over setting laws and regulations that cover the ethics and laws of relationship between man and robot. For those who saw the movie, I Robot with Will Smith, then in a way that movie reflects how our future could be after a short while. Scientists are looking of the further prospect of using cells from rats brains to use in the brainsystem of the robot. Already it is a fact that 1000 cells can run a flightsimulator, so they are optimistic about using this option. Hence our computers will be activated in a biological way instead of computer chips, and there scientists are looking at the nanophysics in that aspect.
So the future is bright, and already in South Korea which is the most technical and advanced nation in the world has started process on putting laws in motion concerning the relationship between man and robot. It will be interesting to see what the future will be after 10 years or more. I kinda remember films like 1984 and I remember the fright of the millennium, when it was thought that all the computer systems would crash because of the change from 1999 to 2000. Alias nothing happened, and we are still alive, and we can still, well maybe, feel safe flying, the planes arent crashing, unless a certain individual doesnt plan something like 9/11.
But that someone person, actually had a birthday on last friday. He turned 50, and I guess he didnt send out a guest list, maybe the closest relatives showed up. I doubt that Bush and Blair were invited. Are you guys getting the hint here, yes of course, who else but Osama Bin Laden turned 50 years old. I wonder if he invited over some suicidebombers for a bang of their life? Who knows?
Well, time to study
Gilly
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006