Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2006

Brot af því besta

Jæja, maður rétt nær að setjast við tölu og losa nokkrar hugsanir frá sér. Þvílíkur darraðardans þessi jól, allir þessir nýríkir 'Islendingar eru að springa úr velmegun og versla eins og þeir eigi lífið að leysa. Það er flott í dag að vera ríkur, aka um á silfurlituðum Porche Cayenne og shop til you drop. 'A meðan svelta einstæðingar, aðrir einstaklingar svipta sig lífi af skömm yfir því að geta ekki gefið börnum sínum jólagjafir eða átt glaðan dag. Sveiattan þessu þjóðfélagi sem er farið að setja verðgildi ofar manngildi. Svei þessum hæstráðendum þjóðfélagsins sem horfa yfir landið úr fílabeinsturni sínum og skilja ekki hví þegnar landsins kvarta og veina stöðugt, á þessum líka fínu launum, sem er búið að hnoða úr hnefa af mikilli "gjafmildi". Svei
þessum siðblindu mönnum sem aldrei hafa þurft að dýfa hendi í kalt vatn, eða strita í svita síns andlits, og munu aldrei njóta uppskeru erfiðins. Svei þeim og öllum þeim sem traðka á vinnandi fólki, eldra fólki og öryrkjum, svei þeim og megi þeir einn dag upplifa þá skömm og svívirðu sem þeir hafa fært yfir þjóðina.
Og þá kannski munu þeir meta það að hafa lagt sitt af mörkum með vinnu en ekki talnaleik og rányrkju.

Til ykkar sem enn þrauka, baráttan er rétt hafin, ekki láta deigan síga, rísum upp og látum í okkur heyra svo eftir verði tekið.

1000kallinn

Sæl verið þið:
Long time no write, only to bite. Smá svona fimm aura, það er nú að koma helgi. Jæja, maður er allur að koma til í handleggnum, kannski maður nái að skrifa eina 100 bls skáldsögu, af örgerðinni, eða ölgerðinni, fer eftir hvað er í glasinu. Það er greinilegt að ég verð að skipta um vinna ef ég á ekki að gersamlega rústa handleggnum, bakinu og fótleggjum. Líkamleg erfiðisvinna undanfarin ár hefur sett sitt mark á "gamla brýnið", ´nú verður bara að finna sér nýtt jobb, þar sem er lítið um erfiði, en þess betra kaup. Kannski maður gerist "slöngutemjari" eða "bensíntittur". Þó hefur mig alltaf langað að gera hið óvenjulega, þe. að læra köfun, gerast hákarlaveiðari, eða flakka um heiminn á low budget, og reyna að vinna fyrir mér með greinaskrifum. 'Eg er nefnilega mjög lélegur 9-5 karakter, er reyndar búinn að prufa ýmislegt til sjós og lands. Maður verður bara að hugsa Plan A og hafa Plan B með í pakkanum.

En annars, mér varð hugsað til þess þegar ég var að versla áðan Í Bónus, þá sá ég í hilluna einhverja heilsurétti með Sölva Fannarri Viðarsyni, og svo er Jói Fel með einhverja rétti. En veit einhver hvað varð um Gauja litla, nógu var hann áberandi hérna áður þó "grannvaxinn" væri, hvar er Gauji litli núna og heilsuréttirnir hans? Upp í hugann kemur, að þegar svona celeb fara að selja okkur hugmyndir sína um matinn sinn, ilminn sinn og fötin sín, þá verður manni hugsað hvernig það yrði ef allt þetta celeb færi nú að vera með sína eigin línu í Bónus. Hugsið ykkur, 'astaraldin Bubba, Guðna 'Ag pylsur og mjólk, Birgittta Haukdal lambakjöt, hey hvað varð um dúkkuna með henni, hvernig ætli að hún hafi selst. Hugsið ykkur floppið í kringum það. Þetta yrði alger hryllingur, þegar celebin færu að troða þessum "línum" sínum ofan í okkur, við munum ekkert breytast í nein celeb, við verðum áfram Jón og Sigga eða Nína og Geiri. Sem betur fer, mér líður ágætlega sem 1000kalli, sjáið til dæmis Jón Sig, það er idol stjarna, hann er "frændi" minn, hann er nefnilega 500kallinn. Jæja, keypti mér disk með dávaldinum Sailesh, ætla að liggja í honum um helgina, enda 4 tíma fjör þar á ferð. Eigið góða helgi.
Bless

Sæl verið þið.
Þá er hringekjan byrjuð að snúast. Hún byrjaði hægt og lævíslega, með ýmsu tilvísunum, auglýsing á strætó, og svo auglýsingar um jólahlaðborð í október, og svo viti menn, hún er komin af stað. Þessi eilífa hringekja, jólahringekjan, sem verður með hverju árinu stærri og meira ógnvekjandi. Hávaðinn er slíkur, að boðskapur jólanna týnist í endalausum snúningi hringekjunnar, þar sem öllu ægir saman, auglýsingum leiknum og sungnum, jóla hitt og jóla þetta. Og við mannverurnar náum ekki spyrna við fótum, allt er byrjað að hringsnúast fyrir okkur, það þarf að parketleggja, það þarf að flísaleggja, það þarf að fara búð úr búð að versla inn, það þarf yfirlegu og miklar pælingar um hvar eigi að versla jólin inn, þau eru nefnilega á svo mörgum stöðum, í búðum, kringlum,útvarpinu, sjónvarpinu, í umferðinni, í stressinu, allst staðar nema í huganum. Allir markaðsfræðingar kappkosta að ná athygli okkar, með öllum sínum útpældum leiðum til þess að telja okkur trú um að jólin verði ekki betri, flottari og meiriháttar nema að við hlaupum útum allt eins og útspýtt hundskinn, að eltast við hringekjuna, sem senn fer á ógnarhraða og ælir síðan mannfólkinu eftir áramót. Og eftir áramót tekur við önnur hringekja, eða réttara sagt Lord of Payments, í bankana að redda raðgreiðslum, léttgreiðslum, yfirdrætti, frádrætti og afslætti. Svona heldur hringekjan áfram, á meðan við huggum okkur við það að við ætlum sko að slappa af í sumar, þegar við förum í frí eftir að hafa klárað síðasta Vísareikninginn. Við eigum það sko skilið, ekki satt

Jæja kæru vinir. Kveðjur til þeirra sem saknað hafa bloggsins frá mér. Fyrir tæpri viku síðan var ég kominn með svo brjálæðislegan texta í huga minn varðandi lífeyrissparnað eldri borgara og yfirleitt lífskjörin í þessu landi. Textinn var alveg eldheitur, en viti menn, þá ásótti mig veikindi og er ég fyrst núna að verða góður af þeim. Þannig að allur eldur er rokinn úr æðum mér og heila. En á meðan ég lá í veikindum mínum þá sökkti ég mér í einn allsherjar bókalestur, um tölvur, íslam, mannkynssöguna og ómerkilega hluti. Kveið því að ekkert yrði eftir fyrir jólabækurnar en það er nóg eftir. Inn á milli hef ég verið í sjúkranuddi hjá alveg frábærum nuddara, hún Kirsten frá Danmörku, flutt á Skerið, og finnst alveg nóg um jólastressið á 'Islendingum. Hún fær örugglega alveg nóg að gera eftir áramót þegar fólk hrynur niður unnvörpum eftir jólastressið og átið. En ég er smátt og smátt að breyta mínum lífsstíl, drekk grænt te á kvöldin og vatn með matnum. Og svo hálftíma göngur á hverju kvöldi. Og nú fer að verða gaman að horfa á allar jólaskreytingarnar í gluggunum í göngutúrnum.
Jæja, má ekki við meiru í bili, handleggurinn er ennþá aumur.


Mikið var!

Sæl verið þið.

Annaðhvort hef ég orðið fyrir súru regni eða þá að þær fáu heilafrumur sem eftir eru hafa dottið úr sambandi. 'Eg er búinn að vera að leita á þessarri bloggsíðu stað til að koma hugsunum frá mér. Loksins fann ég einhvern tengil undir heitinu Stjórnborð, svona eins og í flugmóðurskipi, og rakti síðan slóðina áfram þessarri opnu. Og þá er spurning um fyrstu vitrænu umræðuna á mínu fyrsta bloggi, og vitið þið hvað? 'Eg er algerlega andlaus, ætlaði reyndar að ræða um myndina Irreversible sem ég sá um helgina, í samfloti við King Kong og Man on the Moon, og þegar upp var staðið má segja að Man on the Moon með Jim Carrey hafi fært mér sanninn um að þrátt fyrir alla illskuna og virðingarleysi fyrir mannverunni sem slíkri sem birtist í nauðgun og hrottalegu morði, að til er óhamin frumleg og jafnvel fáránleg gleði til, í sinu vitleysasta formi. Þannig að fenginni reynslu var ágætt að hafa blandað saman þessum ólíku aðstæðum. Um King Kong er ekkert annað hægt að segja ævintýri lifa enn, með blöndu af fegurð, ljótleika og markaðsöflum í einni sæng. Þannig var það. Læt þetta nægja að sinni.


Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

« Fyrri síða

Höfundur

Egill Egilsson
Egill Egilsson
Gamall ritjálkur sem hefur unun af því að rýna í mannlíf og umhverfi.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband