Bloggfærslur mánaðarins, maí 2006
31.5.2006 | 16:54
Helgin í hnotskurn
Var á flakki kosningahelgina. Kíkti á Þingvöll á laugardaginn, frekar dumbungslegt yfir. Gekk upp með Almannagjá, kíkti í þjónustumiðstöðina Hakið, og rölti svo aftur til baka. 'A sunnudegi brá ég mér í bíltúr til Hveragerðis, og kíkti á bæinn. Tók eftir því að gróðurhúsin eru hvert á fætur öðru að hverfa. Brátt munu þau tilheyra fortíðinni. Annars athyglisvert að keyra um Hveragerði og virða fyrir sér stórar lóðir með hálfgerðum sumarbústöðum. Hver lóð er kannski hektari að stærð, grasi gróin og þakin trjágróðri. Svo var helgin tekin í afslöppun, með því að kíkja á til að byrja með High Fidelity með Jack Black og John Cusack. Skipti svo yfir í Waking up Ned, bresk mynd, uppfull af húmor.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2006 | 16:48
Er Mogginn í felum?
Sæl verið þið.
Þá eru kosningar afstaðnar, sumum til mikillar gleði öðrum til ógleði. 'Eg kaus allavega rétt núna, fyrir fjórum árum sá ég eftir atkvæði mínu, en ekki núna. Að vísu var þetta utankjörstaðakosning, og kom eiginlega á óvart, þegar fulltrúi sýslumanns benti mér á að ég þyrfti að koma atkvæðin mínu sjálfur til skila, þ.e suður. 'Eg leysti þann vanda og fór á viðeigandi kosningaskrifstofu og kom því þangað. En hvað gera menn sem eru staddir í útlöndum, ef þetta ákvæði gildir þar? Kaupa þeir flugfar fram og til baka með Iceland Express? Spyr sá sem ekki veit.
Hafið þið séð nýbyggingu Moggans í Hádegismóum hjá Rauðavatni? 'I fyrsta lagi, ekki lengur þessi hallarbragur eins og var á byggingunni í Kringlunni, og í öðru lagi þá lítur þessi bygging út eins reynt sé að fela hana með skæruliðaáferð, ekki ósvipað fatnaðinum frá Army.is. Tók mynd af byggingunni. Kíkið á.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2006 | 11:11
Er sunnudagsblaðið komið?
Shellskálinn Stokkseyri, laugardaginn 27 maí 2006, vindur kona sér inn, og spyr afgreiðslustúlkuna þessarar spurningar: Er sunnudagsblað Fréttablaðsins komið út? Þarf að segja meir? Greinilegt að kosningaspennan er að yfirkeyra suma. Munið að kjósa rétt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2006 | 13:19
Myndir sem gleymdust
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2006 | 13:13
Innrás 2
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2006 | 12:57
Innrás
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2006 | 12:13
SKO
Jæja þá er júrotrashvision hátíðinni lokið. Verð að segja að aldrei bjóst ég við að LORDI myndu vinna þessa keppni, var eiginlega búinn að veðja á annaðhvort Carolu hina sænsku eða Önnu hina grísku. Það er kannski hið besta mál að svo fór, maður skellir sér kannski til Finnlands að ári, til að berja augun hina eina sönnu LORDI og eftirlíkingarnar sem koma munu fram. Hvað skyldum við 'Islendingar senda frá okkur? 'I guðanna bænum, ekki senda Geir 'Olafs, sendum frekar Forgarð Helvítis eða eitthvað, af hverju ekki HAM, þeir myndu rúlla þessu upp. Lærum af reynslunni, svo er Silvíu Nótt fyrir að þakka að við erum ekki beint vinsæl þessa dagana þar syðra.
Gerðist menningarlegur um helgina, kíkti á tvær stórgóðar sýningar, annarsvegar á Eyrarbakka í 'Oðinshúsi svokölluðu, sem á sínum tíma ef mig minnir rétt var veiðarfærageymsla, en er í dag þessi fíni myndlistasalur. ´Listamaðurinn sem var að sýna þar heitir Jón Ingi Sigurmundsson, smellti mynd af honum við eitt af verkum hans. Fyrir áhugasama, þá er hann með heimasíðu, www.joningi.com. Myndirnar hans eru frá Eyrarbaklkasvæðinu, af húsum og staðháttum, margar skemmtilegar og flottar myndir.Að því loknu brá ég mér á Stokkseyri og kíkti í Hólmarastarhúsið, alltaf nóg um að vera þar. Þar getur að líta nýopnaða sýningu eftir Elfar Guðna, og á sama stað er einnig sýning á verkum dóttur hans, Elfu Söndru, á frekar sérstæðum speglum. Myndirnar hans Elfars Guðna eru magnaðar á að líta, maður getur nánast skynjað krafta náttúrunnar í gegnum þær. Set inn myndir seinna í dag, var eitthvað vesen með tengingar. Uppi í kaffstofunni getur að líta myndir eftir rússneska listakonu, með því sérstæða heiti, Lada Cherkasova, þar getur að líta myndir frá Flateyri og sérstök handmáluð brauðbretti. Kíkið endilega á þessar sýningar, sýningin hans Jón Inga er til 28. maí, sýningar Elfars og Lödu eru til 11 júni. Maður kemur endurnærður út frá svona sýningum.
Var að horfa á hinn "sívinsæla" þátt 'Ut og suður á sunnudaginn, í umsjón Gísla Einarssonar. Meðal viðmælenda hans var Bjartur Logi Y Shen að nafni, kínverskur að uppruna. Bjartur Logi þessi er að nema við Viðskiptaháskólann í Bifröst. Að mörgu leyti áhugavert viðtal, en það sem ég hjó mest eftir í þessu viðtali var endalausa notkun viðmælandans á orðinu SKO, það hefur eflaust komið fyrir í öðru hvoru orði hjá honum. Þeir hjá nýja símafyrirtækinu Sko gætu nýtt Bjart Loga í auglýsingaherferð sinni, þar sem notkun hans á sko var orðin ansi yfirdrifin á köflum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2006 | 17:30
Forrest Gump
Skrýtin fyrirsögn, ekki satt? En mér er búið að líða eins og honum að undanförnu. Yfir vinnustaðinn valta frambjóðendur, skælbrosandi og elskulegir, fullir af skilningi og fögrum fyrirheitum og loforðum. Nú á sko að taka til hendinni, losa okkur við þær ógnarstjórnir sem setið hafa og bruðlað með peningana okkar, þagað þunnu hljóði á krítiskum stundum og gleymt okkur lítilmagnanum, nema þegar kosningar eru í nánd. Þá er rokið til í photoshoppuna, allir svo elskulegir og brosandi, fagrir, vel tenntir, konurnar orðnar að hálfgerðum fegurðardrottningum, hinar eru "sjoppaðar" og svo er brunað af stað, með fögru fyrirheitin upp á arminn, í von um að gullfiskaminnið okkar sé ennþá til staðar.´Hversu oft ætlum við að falla fyrir þessum fagurgölum, sem að endingu koma svo óbundnir til kosninga, og um leið og einhver flokkur með meira fylgi nær forystu, þá hlykkjast þessir flokkar saman eins og slöngur á almannafæri. En hvað varðar líkinguna með Forrest Gump, þá var mér orðið svo mikið mál að komast á klósettið, en þurfti því miður að spyrja einn hópinn af þessum sólskinsframbjóðendum um hvað þeir ætluðu að gera eftir fjögur ár ef þeir næðu ekki kjöri eftir sitt fyrsta kjörtímabil, búnir að stofna til skuldbindinga og alles, og þurfa síðan að yfirgefa skútuna og láta aðra taka til eftir sig. Og svarið: Ekkert svar, bara eitthvert sólskinstuð um að horfa til framtíðar í núinu. Þá gafst ég upp og náði á klósettið í einum spreng.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2006 | 17:12
Allir vildu Silvíu kveðið hafa.............í kútinn?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2006 | 17:26
Stífla
Undanfarið hef ég setið við skriftir. Fyrstu tveir dagarnir fóru í það að ganga um gólf, ná sér í blöðin, glugga í gegnum þau, fram og tilbaka, loks dæsti maður, stóð upp og settist við tölvuna. Og viti menn, allt í einu losnaði um stífluna og þvílík froða flæddi fram á ritvöllinn. Svona eftirá að hyggja. Nú er maður að velta því fyrir sér að fá sér útgefanda, ég meina ef Gilzenegger getur sest við skriftir á þremur vikum og skrifað handbók fyrir einhverja örfáa hnakka, þá hlýt ég að eiga sens. Að vísu hef ég ekki verið iðinn við kolann, þ.e.a.s að trana mér fram, ef eitthvað er þá er ´mér meinilla við of mikla athygli, margra, ekkert á móti athygli stelpnanna. En þarf maður virkilega að vera eitthvað númer til að fá eitthvað útgefið eftir sig. Einhvern tíma samdi ég ferðasögu, um ferð mína til Mið-Ameríku og gekk með hana á milli útgefenda. Það tók óratíma að fá svar, sem mér fannst gefa vísbendingu um að menn væru að melta kosti hennar, en svo þegar svarið barst, þá var það hið klassíska svar, því miður. Ekki var tilgreint hvers vegna og hvort séns væri á breyta einhverju í henni. Nei, einfalt því miður. Vinkona mín stóð í svipuðu basli, hún var með fína sögu um interrail ferðalag sem hún fór með vinkonu sinni. Ef satt skal segja þá efast ég um að þessi saga hafi verið enn gefin út. Mér finnst vanta að útgefendur hlúi að þessum þætti, að gefa út fleiri ferðasögur, ég meina við íslendingar erum alltaf að flakka eitthvað í ýmsum erindagjörðum. 'Eg meina hvað eru til margar sögur um hnattreisur eftir íslendinga? Eða einhverjar svaðilfarir, á ókunnar slóðir. Einvhern tíma las ég bók sem hét Falling of the map, þar sem höfundur heimsótti, allavega þá, óþekktar borgir, var semsé á ótroðnum slóðum, þar á meðal til 'Islands, þarsem honum þótti merkilegt að ekki var hægt að horfa á sjónvarp á fimmtudögum, sjónvarpið fór í sumarfrí og bjór var ekki seldur á 'Islandi, þá. Það hefur margt breyst síðan.
Bless í bili
Gilli Gottskálk (a.k.a 1000kallinn)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006