29.11.2007 | 00:38
Ertu sjónrænn eða kóðari
Hilsen allir týndu og dauðuppgefnu lesendur mínir:
Þetta vanalega, brjálað að gera, og eins og kemur fram á bloggsíðu bloggvinkonu minnar, hennar Krístinar, þá var matarboð hjá henni á laugardaginn var og síðan var skemmt sér að íslenskum hætti. Veit reyndar ekki ennþá hvort nágrannar hennar hafi kvartað undan þegar Ingvar, fyrrverandi söngvari Papanna tók Segulstöðvablús hans Bubba með slíkum tilþrifum að eflaust hefur Bing og Gröndahl diskasettið fengið nokkrar sprungur þegar Ingvar komst á háa-cið sitt. En mesta aðdráttaraflið og aðalumræðuefnið er náttúrulega nýja þvottavélin hennar Krístinar sem tekur nokkra góða snúninga þegar útvarpsstöðin Skala hér í Esbjerg er í gangi. Þá hristist allur gólfflötur í eldhúsinu og frammi í stofu þegar þvottavélin hennar hristist og skekst á alla kanta og vegu undir eldhúsborðinu og um tíma er það spurning hvort vélin taki ekki bara þátt í samkvæminu. Og að sögn Krístinar, sem veit ekkert betra en að horfa á Löður í þvottavélinni og um tíma hverfa aftur í árdaga sjónvarps þegar umræddir þættir voru sýndir í íslenska sjónvarpinu, þegar þvottavélin byrjar að undirbúa hristing á la richter skala, þá kannast Krístin við þessa góðu tilfinningu að njóta hámark stundarinnar með þvottavélinni.
En úr gríni í alvöru. Þrátt fyrir að lítið hafi verið að frétta þá bar það helst til tíðinda að ég og fleiri viðstaddir nemendur voru boðaðir á fund deildarstjóra og reyndar kennara deildarinnar í sitthvoru lagi, varðandi frammistöðu okkar og mætingar. Þegar að mér kom, þá fórum við yfir stöðu mála og að sjálfsögðu er alltaf eitthvað sem má bæta og hann benti mér á það góðfúslega og reyndar hvatti mig til að gera miklu meira og sýna hvað í mér byggi, varðandi hönnun og sitthvað fleira. Að sjálfsögðu var þetta ekkert annað en vítamínssprauta og í framhaldinu spurði hann mig hvort ég gæti skilgreint mig annaðhvort sem sjónrænan eða kóðaðan einstakling. 'Eg þurfti ekki að hugsa mig um og skilgreindi mig strax sem sjónrænan einstakling enda í gegnum lífiðhef ég ætíð haft sjónrænar skynjanir á hlutum og formi, og þegar að ljósmynduninni kemur þá er ég á heimavelli. 'Eg hef fundið fyrir því hérna að skynjun mín hefur aukist til muna og þakka ég því fyrst og fremst náminu.
En svo er líka það að nú þarf maður að spýta í lófana og taka aðeins á lausum endum og hnýta þá vel og vandlega saman til að halda utan um allan pakkann. Fram að þessu hefur það gengið bara nokkuð vel hvað varðar nám og svo vinnu og tel ég mig því nokkuð heppinn að því leyti. En betur má ef duga skal
Hilsen
Gilli
Eldri færslur
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.