Leita í fréttum mbl.is

Hvar er Gilli?

Hilsen:

 

Ok, ég viðurkenni það hér og nú, ég er latur. Eða allavegana að undanförnu, enda síðasta færsla í byrjun þessa mánaðar. Veit ekki hverju veldur, tímaleysi eða áhugaleysi. Kannski sambland af hvoru tveggja. En allavegana þá reynir maður að krafla í bakkann og myndast við skriftir.

Og eins og maðurinn sagði, þá er ekkert í fréttum. Var að klára haustfrí frá skólanum, en oftast nær er gefið haustfrí í viku í októbermánuði. Vikan sú var tíðindalítil nema að því leyti að mér tókst að verða mér úti um sinuskeiðarbólgu, sem að sögn danska læknisins sem kíkti á úlnliðinn kvað upp salómon dóm sinn þess efnis að  það væru oftast nær kvenfólk sem fengi sinuskeiðarbólgu. Veit einhver ástæðuna? Þessi sinuskeiðarbólga orsakaðist allavegana ekki af löngum setum við hannyrðir eða að sauma mínar eigin brækur. Nei orsök og afleiðing kemur af vinnu í þvottahúsinu sem ég vann í sumar. Þar var ég í því að tæma níðþunga poka fulla af handklæðum og rúmfötum og í lok fyrsta dags fann ég fyrir verulegum verk í hægri úlnlið. Verkurinn ágerðist síðan enn meir á þriðjudegi og var orðinn verstur á miðvikudegi, en þá ákvað verkstjórinn að senda mig heim enda farinn að vinna aðeins með vinstri handlegg.

Þannig að ég hef lítið gert annað síðan en notast við vinstri handlegg til að læra og borða, enda sá hægri ómögulegur fram að helgi.

Var að skoða frétt á vísir.is þar sem segir frá einhverri tískulöggu (tuskulöggu) sem kom í heimsókn til 'Islands til að mynda götutískuna á meðan Icelandic Airwaves stóðu yfir. Verð að segja eins og er að ég hélt að ég væri að skoða myndir frá viktoríutímabilinu þegar ég sá klæðnaðinn á liðinu, þetta var svona sambland af 80´s tísku og viktoríutímabili. Kíkið á þetta, facehunter.blogspot.com

Mjög áhugavert, enda finnst mér fyndið þegar menn voru að hneykslast á tísku Bjarkar hérna fyrr um árið, nú er þetta orðið í tísku að skera sig úr hvað varðar klæðnað og hárgreiðslu.

Verð að segja eins og er að daninn hérna er að vísu ekki eins hátískuvæddur eins og íslendingurinn, hérna er þetta meira um cool útlit hjá strákunum, og  stelpurnar meira uppáklæddar í þröngum buxum og háhælum og stígvélum.

Nú, svo var ég bætast í heim hinna fullorðnu á Facebook. com sem er svona Myspace fullorðna fólksins. Er með tengil á bloggið mitt þar.

Jæja, kveðja í bili, sá hægri er enn hálf aumur.

Gilli 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Egill Egilsson
Egill Egilsson
Gamall ritjálkur sem hefur unun af því að rýna í mannlíf og umhverfi.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband