15.7.2007 | 15:58
Sjónarsviptir
Hilsen:
Það er skarð fyrir skildi. Einn litríkasti stjórnmálamaður og skörungur í íslensku stjórnmálalífi er fallinn frá. Það er sjónarsviptir að falli Einars Odds Kristjánssonar.
'Eg fékk tækifæri til að kynnast Einari Oddi og fjölskyldu hans þegar ég bjó á Flateyri frá 1995-2000. Þá var Einar Oddur mjög áberandi enda Flateyringar að jafna sig eftir hörmungarnar miklu sem gengu yfir byggðarlagið. Þá var Einar Oddur í tengslum við fyrirtæki sitt Skelfisk sem gerði út bátinn Æsu sem var á skelfiskveiðum í Arnarfirði. Það gustaði ætíð af Einari Oddi, bæði í fasi ogframkomu á mannamótum enda maðurinn þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum.
Minnistæðast er mér þó þegar Einar Oddur lék prest í mynd Lýðs 'Arnasonar sem tekin var að öllu leyti upp á Flateyri, og í því hlutverki sem og öðru í gangverki lífsins var Einar Oddur alveg einstakur.
'Eg kveð Einar Odd og þakka fyrir skemmtileg samskipti bæði á meðan veru minni stóð á Flateyri og þegar ég rakst á hann á förnum vegi í miðbænum.
Fjölskyldu hans votta ég mína dýpstu samúð og hluttekningarkveðjur.
Kv
Egill Egilsson
Eldri færslur
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.