Leita í fréttum mbl.is

Sögur af Bubba

Bubbi á Borginni

Heil og sæl:

Hlustaði á tónleikana með BUBBA  á Bylgjunni í gær, og horfði á Stöð2 ruglað samtímis. Geggjun, ekki satt? En djöf...voru þetta magnaðir tónleikar á að líta. Vona bara að það komi út dvd diskur fljótlega svo hægt er að njóta þess heima. Hann var flottur ´Kóngurinn, hoppaði og skoppaði, ég beið bara eftir smá shadow boxing, en hann stóð fyllilega undir sínu. Mér fannst í fyrstu sem röddin væri ekki nógu góð, en þegar á leið þá stóð hann fyrir sínu. Megi hann hafa þökk fyrir allar þessar perlur sínar í gegnum árin. Með þessarri grein fylgir mynd sem ég tók af BUBBA á Borginni í kringum 1990 eða svo. Er ekki alveg viss, þetta er farið að skolast til. 'Eg varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að fylgjast með BUBBA þegar hann kom að spila á Flateyri þegar ég bjó þar á árunum 1995-2000, fékk að fljóta með honum á tónleika á Suðureyri þar sem hann spilaði í ísköldu félagsheimili í dúnúlpu og einnig þegar hann var að æfa hjá Stebba Dan á 'Isafirði. Þetta var upplifun enda enginn eins og BUBBI. Læt þetta nægja í bili


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Egill Egilsson
Egill Egilsson
Gamall ritjálkur sem hefur unun af því að rýna í mannlíf og umhverfi.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband