30.1.2007 | 21:31
Að leikslokum/The end
Hilsen:
Þannig fór um leik okkar íslendinga við dani, við urðum að lúta í lægra haldi fyrir þeim. Spennan í fyrri hálfleiknum var alveg óbærileg og maður vonaði svo innst inni að okkur tækist að komast yfir með tveggja eða þriggja marka mun, en allan fyrri hálfleikinn skildi að eins marka munur á milli.
Ekki veit ég hvað sambýlingar mínir hérna hafa haldið um mig þegar þeir sáu mig, étandi óafvitandi tvær brauðsneiðar í einu, fórna höndum, eða þá hrópa af gleði þegar við skoruðum hjá dönum. Og þegar framlengingin var þá var maður nánast farinn að bryðja skeiðina sem maður hélt á með annarri hendi. Og lokamínútan var sú lengsta, og innst inni vonaði maður svo innilega að okkur tækist loks að komast áfram, en því miður raunin varð önnur. Enn á ný urðum við að lúta fyrir dönum, enda höfðu þeir margar góðar og snjallar skyttur og til sögunnar nefni ég leikmann nr. 10 hjá þeim, tveggja metra hár leikmaður á að líta sem léttilega lyfti sér upp og skoraði ófá mörkin hjá okkur. Eftir að hafa tekið hann úr umferð var leikmaðuyr nr 8 okkur skeinuhættur. Mér fannst eiginlega of mikil ofnotkun á 'Ola Stefánssyni, Alexander var lítið notaður, saknaði að sjá meiri tilþrif hjá Guðjón Val og hvað þá að Sigfús nyti sín. Aðalmennirnir voru Snorri Steinn og 'Olafur, þeir héldu liðinu uppi allan tímann.
Jamm, en svona fór þetta. Ekki við því að gera nema spýta í lófann og halda áfram. Það er ekki eins og við getum ekki spilað á fleiri mótum, nóg af þeim framundan. Nú er bara spurningin, verður Alfreð áfram þjálfari?
Hi from Gilly:
Well we had our game with the danes, and unfortunately we lost, which we are quite used to. But we had a winning streak for a while and the whole first quarter of the game the difference between goal was only one goal. But in the second quarter it seemed that we had lost control of defense and for a while the danes kept on scoring and we managed to keep them inside the boundaries. In the final stretch the goal was 34-34, and we had a extension and lost the game, O think 40-41 to the danes. So it seems that we are not gonna be one of the teams that will participate in the World Championship in 2008. But thats nothing new to us.
I dont know what my fellow housemembers thought of me, shouting with either joy or sadness, holding two sandwiches in my hand and eating them both at a time. For awhile it was really nervewrecking and in the end It was kinda like a rush, and when we had lost, I felt like a empty balloon.
So now I am going to bed and calm my nerves. Goodnight
Bye
Gilli
Eldri færslur
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.