23.5.2006 | 12:13
SKO
Jæja þá er júrotrashvision hátíðinni lokið. Verð að segja að aldrei bjóst ég við að LORDI myndu vinna þessa keppni, var eiginlega búinn að veðja á annaðhvort Carolu hina sænsku eða Önnu hina grísku. Það er kannski hið besta mál að svo fór, maður skellir sér kannski til Finnlands að ári, til að berja augun hina eina sönnu LORDI og eftirlíkingarnar sem koma munu fram. Hvað skyldum við 'Islendingar senda frá okkur? 'I guðanna bænum, ekki senda Geir 'Olafs, sendum frekar Forgarð Helvítis eða eitthvað, af hverju ekki HAM, þeir myndu rúlla þessu upp. Lærum af reynslunni, svo er Silvíu Nótt fyrir að þakka að við erum ekki beint vinsæl þessa dagana þar syðra.
Gerðist menningarlegur um helgina, kíkti á tvær stórgóðar sýningar, annarsvegar á Eyrarbakka í 'Oðinshúsi svokölluðu, sem á sínum tíma ef mig minnir rétt var veiðarfærageymsla, en er í dag þessi fíni myndlistasalur. ´Listamaðurinn sem var að sýna þar heitir Jón Ingi Sigurmundsson, smellti mynd af honum við eitt af verkum hans. Fyrir áhugasama, þá er hann með heimasíðu, www.joningi.com. Myndirnar hans eru frá Eyrarbaklkasvæðinu, af húsum og staðháttum, margar skemmtilegar og flottar myndir.Að því loknu brá ég mér á Stokkseyri og kíkti í Hólmarastarhúsið, alltaf nóg um að vera þar. Þar getur að líta nýopnaða sýningu eftir Elfar Guðna, og á sama stað er einnig sýning á verkum dóttur hans, Elfu Söndru, á frekar sérstæðum speglum. Myndirnar hans Elfars Guðna eru magnaðar á að líta, maður getur nánast skynjað krafta náttúrunnar í gegnum þær. Set inn myndir seinna í dag, var eitthvað vesen með tengingar. Uppi í kaffstofunni getur að líta myndir eftir rússneska listakonu, með því sérstæða heiti, Lada Cherkasova, þar getur að líta myndir frá Flateyri og sérstök handmáluð brauðbretti. Kíkið endilega á þessar sýningar, sýningin hans Jón Inga er til 28. maí, sýningar Elfars og Lödu eru til 11 júni. Maður kemur endurnærður út frá svona sýningum.
Var að horfa á hinn "sívinsæla" þátt 'Ut og suður á sunnudaginn, í umsjón Gísla Einarssonar. Meðal viðmælenda hans var Bjartur Logi Y Shen að nafni, kínverskur að uppruna. Bjartur Logi þessi er að nema við Viðskiptaháskólann í Bifröst. Að mörgu leyti áhugavert viðtal, en það sem ég hjó mest eftir í þessu viðtali var endalausa notkun viðmælandans á orðinu SKO, það hefur eflaust komið fyrir í öðru hvoru orði hjá honum. Þeir hjá nýja símafyrirtækinu Sko gætu nýtt Bjart Loga í auglýsingaherferð sinni, þar sem notkun hans á sko var orðin ansi yfirdrifin á köflum.
Eldri færslur
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.